Opnar fljótlega

Landsbanka-appið

Höfundur:

Embla Þórsdóttir

Birt

Afrita tengil

Höfundur:

Embla Þórsdóttir

Birt

Afrita tengil

Landsbankinn býður upp á að nota bæði appið og vefinn til að framkvæma mánaðarlegar millifærslur. Hér eru leiðbeiningar fyrir appið:

1. Skráðu þig inn á Landsbanka appið og smelltu á Millifæra neðst á skjánum.

Landsbanki app millifærslur skref 1

2. Næst smellir þú á plúsinn (+) neðst á skjánum.

Landsbanki app millifærslur skref 2

3. Þar slærðu inn kennitölu Spesíu: 4309240440 og smellir á Áfram.

Landsbanki app millifærslur skref 3

4. Næst slærðu inn reikningsnúmer Spesíu: 0515-14-010600 og smellir á Áfram.

Landsbanki app millifærslur skref 4

5. Þá velur þú upphæð og úttektarreikning á reglulegu millifærslunni og smellir á Tímasetja.

Landsbanki app millifærslur skref 5

6. Þá smellir þú á Mánaðarleg og getur þar valið dagsetningu á fyrstu millifærslunni. Þú getur einnig valið hvenær síðasta millifærslan á að vera framkvæmd, en það er ekki nauðsynlegt.

Fyrsta millifærslan er mánaðardagurinn þegar greiðslan á sér stað í hverjum mánuði. Síðasta millifærslan er hvort að það eigi að vera einhver lokadagsetning á reglulegu greiðslunni.

Engin lokadagsetning þýðir að greiðslan verður endurtekin þangað til þú hættir við.

Næst smellir þú á Áfram.

Landsbanki app millifærslur skref 6

7. Hér getur þú farið yfir hvort allar upplýsingar séu réttar og smellir svo á Greiða. Þá er þetta komið.

Landsbanki app millifærslur skref 7
Rannís logoSeðlabanki logo

Starfsemi Spesíu er háð starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu og Spesía hefur hlotið styrki frá Tækniþróunarsjóði Rannís.


Rannís logoSeðlabanki logo

Starfsemi Spesíu er háð starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu og Spesía hefur hlotið styrki frá Tækniþróunarsjóði Rannís.


© Spesía eignastýring hf. 2024-2026. Allur réttur áskilinn.

Persónuverndarstefna

Vefkökuskilmálar