Ekki spara. Fjárfestu.
Fjárfestu með einföldum hætti í alþjóðlegu eignasafni.

Þetta þarf ekki að vera flókið.
Þú þarft ekki að vera sérfræðingur til að fjárfesta. Við leiðum þig í gegnum ferlið og útskýrum allt á mannamáli.
- Þú svarar nokkrum spurningum.
- Við mælum með fjárfestingarstefnu sem þú staðfestir.
- Þú leggur inn og fylgist með í appinu eða á vefnum.
Við sjáum um allt annað.

1 milljón kr. sett í alþjóðleg hlutabréf & sparnaðarreikninga 2001-2025
Jafnvel sparnaðarreikningarnir með hæstu vextina halda varla í við verðbólgu. Það þýðir að raunávöxtunin er 0%. Sparnaður þinn á betra skilið. Hættu að spara. Fjárfestu!
Gjöld skipta öllu máli þegar kemur að fjárfestingum svo ávöxtunin skili sér til þín. Á Íslandi hafa gjöld í sjóðum og eignastýringu lengi verið yfirgengilega há. Svo há að yfir helmingur raunávöxtunar sjóðanna hefur farið í gjöld og kostnað en innan við helmingur til fjárfesta. Spesía er öðruvísi. Því minna sem fer í kostnað, því meira safnast fyrir hjá þér.
Fólk hefur ólíkar þarfir og mismikinn áhuga á fjármálum. Hér eru nokkrar mismunandi ástæður fyrir því að fjárfesta með Spesíu sem þú gætir tengt við.

Spesía auðveldar öllum að fjárfesta eins og best verður á kosið.
Ekki geyma allt á Íslandi.
Með Spesíu dreifir þú fjárfestingum þínum um allan heim og dregur úr áhættunni sem fylgir litlum hagkerfum.
1 milljón kr. sett í alþjóðleg og íslensk hlutabréf 2001-2025

Þínir peningar eiga skilið tryggt eftirlit.
- Spesía starfar undir eftirliti frá Seðlabanka Íslands.
- Eignasafnið er geymt hjá vörsluaðila í þínu nafni og er ávallt aðskilið frá fjárhag Spesíu.
- Aðeins er hægt að millifæra á bankareikning á þinni kennitölu.
- Spesía er óháð íslenska bankakerfinu.
Persónuvernd og upplýsingaöryggi eru eins og best verður á kosið og eru hornsteinar í allri starfsemi Spesíu. Að auki starfar Spesía eftir lögum um persónuvernd og hefur sett sér sérstaka persónuverndarstefnu, sem lesa má hér.
Spesía er íslensk fjárfestingaþjónusta sem gerir þér kleift að fjárfesta í vel dreifðu alþjóðlegu eignasafni hlutabréfa og skuldabréfa með einföldum hætti og gegn lágum gjöldum. Við sjáum um allt það flókna með sjálfvirkri ráðgjöf og eignastýringu , svo að þú þarft ekki að vera sérfræðingur til að byrja. Að fjárfesta með Spesíu er jafn einfalt og að nota venjulega bankareikninga og hentar mjög vel þegar fjárfest er til lengri tíma en tveggja ára.
Verðskrá Spesíu er afar einföld. Þóknun Spesíu skiptist í tvennt: sjóðastýringargjald og eignastýringargjald. Að auki fellur til smávægilegur kostnaður inni í sjóðunum sjálfum vegna kaupa og sölu eigna, en Spesía tekur engar sérstakar þóknanir við kaup eða sölu og það eru engin önnur falin gjöld. Þú sérð nákvæmlega hvað þú borgar, alltaf.
Markmið Spesíu er að vera lang hagkvæmasti kosturinn á Íslandi svo að stærstur hluti ávöxtunarinnar skili sér til fjárfesta. Verðskrá Spesíu má finna hér.
Við viljum að fjárfestingar séu aðgengilegar öllum og þess vegna er engin lágmarksinnlögn hjá Spesíu. Þú getur lagt inn hvaða upphæð sem er og byrjað smátt og lagt inn meira síðar eða byrjað í áskrift með lágri upphæð.
Spesía fjárfestir fyrir þig í alþjóðlegum hlutabréfum og íslenskum ríkisskuldabréfum í mismunandi hlutföllum eftir fjárfestingaleiðum. Spesía fjárfestir í alþjóðlegum hlutabréfum í gegnum nokkra vísitölusjóði sem hafa lág gjöld þannig að niðurstaðan verður vel dreift alþjóðlegt eignasafn sem mætti kalla heimssafn hlutabréfa. Safnið inniheldur hlutabréf í þúsundum fyrirtækja um allan heim, þar á meðal í Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu. Spesía fjárfestir einnig í íslenskum ríkisskuldabréfum. Þú getur séð nákvæma samsetningu á eignasafninu þínu (þ.e. í hvaða fyrirtækjum og skuldabréfum er fjárfest og fyrir hversu mikið) á hverjum tíma inn á mínum síðum undir "Eignasafn".
Vertu á undan. Skráðu þig á biðlistann.




