Spesíu leiðin til að fjárfesta
Spesía fjárfestir í íslenskum ríkisskuldabréfum og alþjóðlegum hlutabréfum þúsunda fyrirtækja um allan heim til að ná mikilli áhættudreifingu.
Spesía byggir á nokkrum meginreglum fjárfestinga: Áhættudreifingu, lágum kostnaði og því að velja eignasamsetningu með hliðsjón af fjárfestingartíma og áhættuþoli.
Við erum ekki að finna upp hjólið. Nálgun Spesíu byggir á áratuga rannsóknum á fjárfestingum og gögnum um hvernig markaðir og fjárfestar hafa raunverulega hagað sér - ekki tilfinningu, spádómum eða heppni. Hér á eftir förum við yfir þessar meginreglur og rökin að baki þeim.

Þegar kemur að langtímasparnaði hafa hlutabréf sterka sögulega stöðu sem er ástæðan fyrir því að langtímafjárfestar, eins og t.d. lífeyrissjóðir, horfa mest til þess eignaflokks. Hagfræðingarnir Elroy Dimson, Paul Marsh og Mike Staunton hafa rannsakað langtímaávöxtun hlutabréfa, skuldabréfa og ríkisvíxla í 35 löndum, en ríkisvíxlar eru sambærilegir við þá sparnaðarreikninga sem bera bestu vextina. Í UBS Global Investment Returns Yearbook 2025 ná gögn þeirra yfir 125 ár, frá 1900 til 2024, fyrir 23 þessara markaða. Í þeim öllum skiluðu hlutabréf mun hærri ávöxtun en skuldabréf og ríkisvíxlar yfir tímabilið í heild.
Munurinn var verulegur. Á tímabilinu 1900–2024 var árleg meðalraunávöxtun alþjóðlegra hlutabréfa 5,2%, samanborið við 1,7% af skuldabréfum og 0,5% af ríkisvíxlum. Og aðeins bestu sparnaðarreikningarnir bera vexti sem nálgast ríkisvíxla. Meðalávöxtun allra sparnaðarreikninga er almennt enn lægri.
Þessi langa saga sýnir að fjárfestingar í hlutabréfum eru ekki tískubóla, eða byggir á heppni, heldur eru hlutabréf einmitt sá eignaflokkur sem sagan sýnir að hefur skilað bestu langtímaávöxtuninni.
Uppsöfnuð raunávöxtun eignaflokka í Bandaríkjunum 1900-2024
Þessi saga er þó ekki saga samfelldrar hækkunar. Eftir hrunið 1929 tók bandaríska hlutabréfamarkaðinn um fimmtán ár að ná fyrra verðmæti að teknu tilliti til verðbólgu. Langur fjárfestingartími og þolinmæði skipta því máli.
Fjárfestingar í hlutabréfum geta sveiflast mikið til skemmri tíma. Lengri fjárfestingartími gefur meira svigrúm til að mæta sveiflum, og ávöxtun er aldrei tryggð.
Fyrir fjárfesta sem missa svefn yfir skammtímasveiflum og lækkunum, gæti verið skynsamlegt að draga úr sveiflum og áhættu í eignasafninu með því að lækka hlutfall hlutabréfa og auka hlutfall annarra eigna sem sveiflast minna eins og t.d. skuldabréfa.
Sparnaðarreikningar henta þó vel fyrir aðgengilegan varasjóð, þegar fjárfestir þolir enga hættu á lækkun, eða þegar spara á til skemmri tíma en eins til tveggja ára.

Að blanda saman ólíkum fjárfestingakostum er líklega eini ókeypis hádegisverðurinn í fjárfestingum. Þetta á bæði við um þegar blandað er saman hlutabréfum í ólíkum félögum og frá ólíkum landsvæðum og mismunandi tegundum fjárfestinga eins og hlutabréfum og skuldabréfum.
Þessi aðferð - að byggja eignasöfn á breiðri dreifingu ólíkra eignaflokka sem jafna hver annan út - er sú aðferð sem almennt er viðurkennd í fjármálafræðum við uppbyggingu eignasafna. Harry Markowitz lýsti þessu fyrstur á fræðilegan hátt þegar hann setti fram samvalskenninguna (e. Modern Portfolio Theory) árið 1952, og hlaut fyrir hana Nóbelsverðlaunin í hagfræði árið 1990.
Rannsóknir Dimson, Marsh og Staunton sýna jafnframt mikilvægi áhættudreifingar. Greining þeirra á samspili hlutabréfa og skuldabréfa yfir tímabilið 1900–2024 sýnir hvernig blanda þessara eignaflokka getur dregið úr sveiflum. Í sérstökum samanburði á tímabilinu 1974–2024 gaf alþjóðleg dreifing hlutabréfafjárfestinga einnig betri ávöxtun miðað við áhættu en fjárfesting eingöngu á heimamarkaði í langflestum þeirra 32 landa sem voru skoðuð.
Ávöxtun hlutabréfa og skuldabréfa fylgist ekki fullkomlega að og þessir eignaflokkar hafa því oft tilhneigingu til að jafna út sveiflur hvor hjá öðrum frekar en að magna þær. Með því að blanda þeim saman má því draga úr sveiflum eignasafns, en það getur líka þýtt lægri vænta ávöxtun. Margir fjárfestar kjósa það jafnvægi og vilja frekar jafnari og aðeins lægri ávöxtun en sveiflukenndari og aðeins hærri ávöxtun.
Við val á hlutfalli hlutabréfa og skuldabréfa fyrir hvern og einn fjárfesti skiptir máli hvenær fjármunanna verður þörf og hversu mikla áhættu fjárfestirinn getur og vill taka.
Ávöxtun fjárfestinga er óviss, en kostnaðurinn dregst frá sama hvernig gengur. Við vitum því að lægri kostnaður skilar sér, að öðru jöfnu, í betri ávöxtun fyrir fjárfestinn.
Það getur verið freistandi að greiða meira fyrir að fá einhvern til að velja bestu fjárfestingarkostina. Til að það borgi sig þarf ávinningurinn af þeirri vinnu að vera meiri en viðbótarkostnaðurinn. Það er erfitt að ná því með viðvarandi hætti og góður árangur undanfarinna ára einn og sér segir ekki til um hvort það muni takast í framtíðinni.
Tvö prósentustig á ári geta skipt sköpum. Tökum einfalt reiknidæmi: Ein milljón króna sem vex um 6% á ári eftir kostnað verður að um 5,7 milljónum á 30 árum. Ef hærri kostnaður lækkar ávöxtunina í 4% verður lokaupphæðin um 3,2 milljónir. Hærri kostnaður og töpuð ávöxtun af honum hafa þá étið meira en helming af ávinningnum.
Þess vegna leggur Spesía áherslu á að halda kostnaði niðri og meta hvað fæst fyrir hann. Markmiðið er að sem mest af ávöxtuninni verði eftir hjá fjárfestinum. Hærri kostnaður þarf að skila ávinningi sem vegur upp á móti honum.

Þetta er lykilspurning: Er ekki hægt að gera betur en markaðinn með því að fá einhvern til að velja „bestu" hlutabréfin fyrir okkur? Eða jafnvel gera það sjálf(ur)?
Að velja bestu hlutabréfin hljómar vel. En að gera betur en markaðurinn eftir kostnað, með fyrirsjánlegum hætti, er mjög erfitt eins og rannsóknir um áratugaskeið hafa sýnt fram á. Og þeir sem stóðu sig best í gær eru ekki endilega sigurvegarar morgundagsins.
Góður árangur getur byggst á þekkingu og færni, en líka hagstæðum markaðsaðstæðum eða heppni. Það er ekki auðvelt að greina þar á milli eða finna þá örfáu sjóði sem hugsanlega byggja árangur sinn á færni. Að velja sjóðinn sem stóð sig best síðustu ár hefur nefnilega ekki reynst góð uppskrift að góðum árangri næstu ára.
Þess vegna byggjum við eignasöfn Spesíu ekki á því að finna næsta sigurvegara. Við dreifum fjárfestingum á þúsundir fyrirtækja með ódýrum vísitölusjóðum. Þannig getum við tekið þátt í verðmætasköpun þeirra án þess að þurfa að spá fyrir um hvaða einstöku félög muni skara fram úr.
Virk stýring, þar sem sjóðsstjórar reyna að velja sigurvegara, þarf hins vegar skýr rök fyrir því hvernig hún geti skapað ávinning umfram kostnað, og í langflestum tilfellum tekst það ekki.
Spesía fjárfestir eingöngu í alþjóðlegum hlutabréfum, ekki íslenskum. Fyrir því eru þrjár ástæður:
Í fyrsta lagi eru flestir Íslendingar nú þegar háðir því að það gangi vel í íslensku hagkerfi - í gegnum starf sitt, heimili sitt og lífeyrissparnað.
Að auka áhættuna sem tengist Íslandi enn meira með því að fjárfesta í íslenskum hlutabréfum dreifir ekki þessari áhættu heldur þjappar henni enn meira saman á Íslandi.
Í öðru lagi geta erlendar fjárfestingar dregið úr því hversu háð eignasafnið er íslensku hagkerfi. Gengisbreytingar geta þó bæði hækkað og lækkað verðmæti erlendra eigna mælt í krónum.
Þegar eignum er dreift um heiminn allan erum við betur varin og ekki eins háð einu landi eða einni atvinnugrein eins og ef við værum með allt okkar á Íslandi.
Í þriðja lagi er íslenski hlutabréfamarkaðurinn einsleitur og agnarsmár í alþjóðlegu samhengi, með fá félög og fáar atvinnugreinar.
Á móti kemur að Spesía fjárfestir eingöngu í íslenskum skuldabréfum, t.d. ríkisskuldabréfum.
Fyrir fjárfesti með tekjur og útgjöld í krónum hefur það þann kost að gengisbreytingar erlendra gjaldmiðla hafa ekki bein áhrif á skuldabréfahlutann þegar hann er í krónum. Markaðsverð skuldabréfanna getur þó lækkað, meðal annars þegar vextir hækka.

Það er auðvelt að fá á tilfinninguna að nú sé óvenju slæmur tími til að fjárfesta. Covid-faraldurinn, tollastríð, stríðið í Úkraínu, fjármálakreppan 2008 - það er alltaf eitthvað sem virðist ógna fjármálamörkuðum.
En sagan sýnir að þrátt fyrir öll þessi áföll hafa alþjóðlegir hlutabréfamarkaðir í heild sinni haldið áfram að hækka til lengri tíma litið. Söguleg ávöxtun tryggir þó ekki sambærilega ávöxtun í framtíðinni og lækkanir geta varað lengi.
Sumir bíða með að fjárfesta árum saman því það kemur aldrei “rétti tíminn”. Þetta er ein helsta röksemdin fyrir því að fjárfesta reglulega - til dæmis mánaðarlega - frekar en að reyna að velja „rétta" tímapunktinn.
Með reglulegum kaupum dreifist fjárfestingin sjálfkrafa yfir hærri og lægri punkta á markaðnum.
Spesía hefur þessar meginreglur að leiðarljósi: Við fjárfestum í ódýrum vísitölusjóðum með mikilli, alþjóðlegri dreifingu, og blöndum erlendum hlutabréfum og íslenskum ríkisskuldabréfum í hlutföllum sem taka mið af tímaramma og áhættuþoli hvers og eins. Ekkert veðmál á einstök félög, engin tilraun til að spá fyrir um markaðinn frá degi til dags, heldur agi, áhættudreifing og lágur kostnaður.
Að þessu sögðu þá vitum við að fjárfestingar snúast ekki bara um vísindalegar aðferðir, formúlur og útreikninga. Stærsta hindrunin fyrir marga sparifjáreigendur að taka skrefið og fjárfesta í verðbréfum er oft tilfinningalegs eðlis - upplifunin að þetta sé of flókið, of áhættusamt, of mikið fjárhættuspil, eða að maður þurfi að vera sérfræðingur til að byrja.
