Spurt & svarað

Algengar spurningar

Hér höfum við tekið saman þær spurningar sem við fáum oft, og nokkrar sem við fáum ekki svo oft.

Speech bubbles

Að byrja hjá Spesíu

Okkur er skylt samkvæmt lögum um markaði fjármálagerninga að meta hvort þjónustan hæfi þér áður en við veitum hana. Spurningar um þekkingu, reynslu, fjárhagsstöðu og áhættuþol eru hluti af því mati.

En svo nýtast svörin líka beint því þau ráða því hvaða fjárfestingarstefnu við leggjum til fyrir þig.

Öllum fjármálafyrirtækjum á Íslandi er skylt samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka að afla upplýsinga um viðskiptavini sína og uppruna þeirra fjármuna sem lagðir eru inn.

Því spyrjum við þessara spurninga, það er ekkert persónulegt. Upplýsingarnar eru meðhöndlaðar sem trúnaðarupplýsingar og eingöngu notaðar í þessum tilgangi.

Nei, ekki eins og er.

Nei, þjónustan er aðeins í boði fyrir þá sem eru með íslenska kennitölu, rafræn skilríki og íslenskan bankareikning.

Nei, ekki eins og er. Reikningur hjá Spesíu er bundinn við einstakling sem er 18 ára eða eldri og fjárráða. Við stefnum á að bjóða upp á sparnað fyrir börn og ungmenni innan skamms.

Nei, þú getur aðeins lagt inn peninga en ekki verðbréf eða sjóði. Þú þyrftir því að selja verðbréfin sem þú átt annars staðar (salan kann að vera skattskyld) og leggja söluandvirðið inn hjá Spesíu. 

Nei, fyrirtæki geta ekki fjárfest hjá Spesíu, þjónustan er eingöngu fyrir einstaklinga eins og er. Við stefnum á að bjóða lögaðilum upp á þjónustuna síðar.

Það tekur bara nokkrar mínútur að stofna reikning. Eftir það leggur þú inn á Spesíu reikninginn þinn og þú sérð innborgunina í appinu í flestum tilfellum innan við mínútu eftir að þú millifærir. Spesía fjárfestir upphæðinni í samræmi við þá fjárfestingarstefnu sem þú valdir en það tekur einn til tvo virka daga.

Þrennt: rafræn skilríki (í síma eða á korti), íslenska kennitölu og íslenskan bankareikning í þínu nafni. Þú þarft að vera 18 ára eða eldri og fjárráða.

Við viljum að fjárfestingar séu aðgengilegar öllum og þess vegna er engin lágmarksinnlögn hjá Spesíu. Þú getur lagt inn hvaða upphæð sem er og byrjað smátt og lagt inn meira síðar eða byrjað í áskrift með lágri upphæð.

Það tekur aðeins örfáar mínútur og kostar ekkert að opna reikning hjá Spesíu. Þú þarft að vera fjárráða, með íslenska kennitölu, rafræn skilríki, íslenskan bankareikning og hafa náð 18 ára aldri.

Við stofnun reiknings auðkennir þú þig með rafrænum skilríkjum og svarar nokkrum spurningum um þín markmið, aðstæður og viðhorf þitt til fjárfestinga og áhættu. Byggt á svörunum leggjum við til fjárfestingarstefnu sem við teljum henta þér best og þú staðfestir eða velur aðra stefnu. Að lokum svarar þú nokkrum spurningum sem snúa að vörnum gegn peningaþvætti, sem okkur er skylt samkvæmt lögum að spyrja um og skrifar undir samning með rafrænum skilríkjum. Eftir að þú hefur stofnað aðgang getur þú lagt peninga inn á Spesíu reikninginn þinn og við munum fjárfesta í samræmi við fjárfestingarstefnuna sem þú valdir.

Þegar þú stofnar reikning svarar þú nokkrum spurningum um markmið þín, fjárhag, hversu lengi þú ætlar að fjárfesta og hvernig þér liði ef eignasafnið lækkaði tímabundið. Út frá svörunum leggjum við til eina af þremur fjárfestingarstefnum: Varfærin (30% hlutabréf, 70% skuldabréf), Blönduð (60% hlutabréf/40% skuldabréf) eða Framsækin (100% hlutabréf).

Þú ræður hvort þú fylgir tillögunni og getur í flestum tilfellum valið aðra leið ef þú vilt. Tvennt ræður mestu: Til hversu langs tíma þú ætlar að fjárfesta, og hversu vel þú þolir sveiflur á leiðinni.

Þegar þú stofnar reikning hjá Spesíu hjálpum við þér að velja fjárfestingarleið sem hentar þér best. Með því ertu í raun að velja ákveðinn sjóð sem Spesía rekur. Þegar þú svo leggur inn á reikninginn þinn hjá Spesíu þá er öll upphæðin notuð til að kaupa í þeim sjóði sem samsvarar þeirri fjárfestingarstefnu sem þú valdir. Að sama skapi þegar þú óskar eftir úttekt er selt í sjóðnum og söluandvirði (að frádregnum fjármagnstekjuskatti vegna söluhagnaðar) millifært á bankareikninginn þinn.

Ávöxtunin af fjárfestingu þinni hjá Spesíu fylgir því hvernig sjóðnum vegnar: Ef virði eignanna í sjóðnum hækka, hækkar þinn hlutur líka - og lækki virðið, þá lækkar þinn hlutur á sama hátt. Eignasafnið þitt í sjóðnum er alltaf í þinni eigu en ekki hluti af efnahag Spesíu, sem sér bara um að stýra sjóðunum fyrir hönd fjárfesta. Eignirnar eru jafnframt varðveittar hjá óháðum vörsluaðila (T plús), ekki Spesíu.

Staða Spesíu reikningsins þíns sýnir ávallt virði eignasafnsins og ávöxtun sjóðanna eftir að gjöld hafa verið dregin frá, þannig að innistæðan sem að þú sérð inn á mínum síðum er það sem þú átt hverju sinni.

Fjárfestingar

Enginn veit fyrirfram hvort markaðir eigi eftir hækka eða lækka á næstunni, og fæstum tekst að tímasetja rétt kaup til lengdar. Þess vegna mælum við með reglulegum innborgunum. Þá dreifast kaupin sjálfkrafa yfir bæði uppsveiflur og niðursveiflur á mörkuðum.

Ef þú átt uppsafnaðan sparnað sem þú vilt fjárfesta með Spesíu getur líka borgað sig að skipta honum niður og fjárfesta honum í nokkrum áföngum á nokkrum mánuðum, í stað þess að fjárfesta öllu á sama degi.

Almenna reglan er einföld: Berðu saman vexti lánsins og þá ávöxtun sem þú býst við. Ef lánið ber hærri vexti en þú átt von á í ávöxtun er niðurgreiðsla að jafnaði betri kostur, og hún er auk þess örugg og ber ekki fjármagnstekjuskatt, ólíkt ávöxtun á markaði.

Á móti kemur að það getur borgað sig að geyma sparnað í sjóðum sem auðvelt er að selja og grípa til með stuttum fyrirvara. Eins hefur langtímafjárfesting í alþjóðlegu eignasafni sögulega skilað ávöxtun sem er hærri en vextir á hagstæðum lánum eins og námslánum og sumum íbúðalánum. Mörg heimili gera hvort tveggja í einhverju mæli.

Sumir sjóðir ráða sérfræðing til að velja „bestu" hlutabréfin í von um að gera betur en markaðurinn í heild. Þetta kallast virk stýring. Vandamálið er að þetta tekst nánast aldrei. Rannsóknir sýna að færri en einn af hverjum tíu slíkum sjóðum nær að gera betur en markaðurinn þegar upp er staðið, og ómögulegt er að vita fyrirfram hverjir það verða.

Á sama tíma kostar virk stýring miklu meira því sama hvernig gengur þurfa fjárfestar alltaf að borga launin, greininguna og skrifstofuhúsnæðið á bak við virka stýringu, og það er gert með háum gjöldum sem dragast af ávöxtuninni - á Íslandi venjulega 2-3% á ári. Það hljómar lítið en étur upp stóran hluta af ávöxtuninni þinni þegar til lengri tíma er litið.

Í stað þess að reyna að velja bestu félögin, kaupa vísitölusjóðir sjálfkrafa hlutabréf í öllum félögum á tilteknum markaði (t.d. 500 stærstu fyrirtækjum í Bandaríkjunum). Þannig fylgir ávöxtunin markaðnum í heild, gjöldin eru mun lægri, og þú þarft ekki að treysta á að einhver „giski rétt".

Uppgefin ávöxtun sjóðs miðast við að öll upphæðin hafi verið inni allt tímabilið. Þín ávöxtun ræðst líka af því hvenær þú lagðir inn.

Helsti kosturinn við að blanda saman hlutabréfum og skuldabréfum er sá að þessir eignaflokkar hafa sögulega oftast hegðað sér þannig að þegar annar hækkar lækkar hinn, og öfugt. Þeir hafa því tilhneigingu til að jafna út sveiflur hvor hjá öðrum frekar en að magna þær, sem er meginástæðan fyrir því að eignasöfn með blöndu af hlutabréfum og skuldabréfum hafa verið vinsæl hjá langtímafjárfestum.

Af þremur ástæðum. Flest okkar eru nú þegar háðir því að það gangi vel í íslensku hagkerfi - í gegnum starf sitt, heimili og lífeyrissparnað. Að auka áhættuna sem tengist Íslandi enn meira með því að fjárfesta í íslenskum hlutabréfum dreifir ekki þessari áhættu heldur þjappar henni enn meira saman á Íslandi.

Í öðru lagi er fjárfesting í erlendum hlutabréfum vörn gegn áföllum sem eru sértæk fyrir Ísland

Í þriðja lagi er íslenski hlutabréfamarkaðurinn agnarsmár og einsleitur í alþjóðlegu samhengi, með fá félög og fáar atvinnugreinar. Besta leiðin til að lágmarka áhættu án þess að fórna væntri ávöxtun er mikil dreifing fjárfestinga á breiðum grunni sem nær til margra óskyldra og ótengdra eigna.

Hér getur þú lesið nánar um fjárfestingar aðferðafræði Spesíu.

Nei, hlutabréfahluti eignasafnsins sveiflast með gengi krónunnar. Fyrir íslenskt heimili er þetta kostur frekar en galli. Þar sem tekjur og útgjöld eru í krónum, veitir alþjóðlegt eignasafn ákveðna vörn þegar áföll verða í íslenska hagkerfinu, því krónan hefur tilhneigingu til að falla í slíkum aðstæðum. Þegar krónan styrkist þá lækkar safnið í krónum talið en til langs tíma jafnast sveiflurnar oftast út og það borgar sig ekki að kaupa varnir því það fylgir því meiri kostnaður en ávinningur í flestum tilfellum.

Það er ekki hægt að fjárfesta í hlutabréfum í einstökum fyrirtækjum í gegnum Spesíu, aðeins í okkar eigin sjóðum sem hver samsvarar ákveðinni fjárfestingarleið sem hver viðskiptavinur velur þegar reikningur er opnaður. Það má segja að Spesía bjóði uppá sjálfvirka eignastýringu sem þýðir að við setjum saman vel dreift eignasafn með alþjóðlegum hlutabréfum og íslenskum ríkisskuldabréfum í hlutföllum sem passa þínum markmiðum og vilja. Þannig dreifist fjárfestingin þín á þúsundir fyrirtækja um allan heim, sem minnkar verulega áhættu og ver þig fyrir áföllum í íslenska hagkerfinu.

Já. Fjárfesting í hlutabréfum og skuldabréfum felur alltaf í sér áhættu og virði eignasafns þíns getur bæði hækkað og lækkað. Við hjálpum þér að velja fjárfestingarleið sem passar við þitt áhættuþol og tímalengd.

Þegar fjármálamarkaðir hreyfast skekkist smám saman hlutfallið milli hlutabréfa og skuldabréfa í sjóðinum. Sem dæmi ef að hlutabréf hækka mikið gæti sjóðurinn orðið áhættumeiri en fjárfestingarstefnan sem þú valdir.

Spesía stýrir eignasafninu ávallt í samræmi við þá fjárfestingarstefnu sem þú valdir, meðal annars með því að endurjafna (e. rebalance) sem felst í að halda hlutfalli hlutabréfa og skuldabréfa nokkurn veginn föstu á hverjum tíma. Þú þarft því ekkert að gera.

Að öllu jöfnu: Ekkert. Lækkanir eru óaðskiljanlegur hluti fjármálamarkaða og í raun það sem gerir hærri langtímaávöxtun yfirhöfuð mögulega. Það er hægt að hugsa um um óvissuna og reglulegar lækkanir sem „verðið" sem greitt er fyrir góða ávöxtun yfir lengri tíma. Frá 1900 hafa alþjóðleg hlutabréf gengið í gegnum heimsstyrjaldir, olíukreppur, bankahrun og heimsfaraldur, en hafa þrátt fyrir allt almennt haldið haldið áfram að hækka þegar til lengri tíma er litið.

Það sem kostar fjárfesta mest er sjaldan lækkunin sjálf, heldur það að selja í miðri lækkun og missa af endurkomunni, eða bíða með peningana á sparireikningi árum saman á lágum vöxtum því “rétti tíminn” til að byrja kemur aldrei. Ef sveiflurnar halda fyrir þér vöku bendir það til þess að fjárfestingarstefnan þín sé áhættumeiri en þú þolir, þá er rétta viðbragðið kannski að breyta um stefnu, en ekki að hætta að fjárfesta.

Markmið Spesíu er að hámarka ávöxtun þína að teknu tilliti til þeirrar áhættu sem þú velur að taka þegar þú velur fjárfestingaleið þegar þú opnar reikning hjá Spesíu. Ávöxtun eignasafnsins sveiflast í takt við þróun fjármálamarkaða með hlutabréf og skuldabréf sem hafa sögulega gefið ágæta ávöxtun til lengri tíma litið. Ávöxtun á fjármálamörkuðum er þó aldrei tryggð og getur virði fjárfestingar þinnar bæði hækkað og lækkað, sér í lagi til skemmri tíma. Almennt er fjárfesting með Spesíu hugsuð til lengri tíma, þar sem sveiflur á mörkuðum ættu að jafnast út með tímanum.

Þrjár, sem hver samsvarar einum sjóði í rekstri hjá Spesíu:

  • Varfærin - SE 30 — 30% hlutabréf, 70% skuldabréf
  • Blönduð - SE 60 — 60% hlutabréf, 40% skuldabréf
  • Framsækin - SE 100 — 100% hlutabréf

Því hærra hlutfall hlutabréfa, því meiri vænt ávöxtun til langs tíma og því meiri sveiflur á leiðinni.

Þegar þú fjárfestir í sjóði hjá Spesíu dreifist fjárfestingin þín á hlutabréf þúsunda félaga um allan heim auk íslenskra ríkisskuldabréfa í stað þess að vera bundinn við eitt fyrirtæki eða eina skuldabréfaútgáfu. Það minnkar áhættuna verulega miðað við að eiga stök bréf og einnig má segja að alþjóðlegt hlutabréfasafn sé vörn gegn áföllum í íslenska hagkerfinu.

Sjóðir Spesíu eru líka afar hagkvæmir í rekstri þar sem rekstur þeirra er að mestu sjálfvirkur og vegna þess að sjóðurinn kaupir eignir í mun meira magni en einstaklingur gerir venjulega. Kostaðurinn verður því hlutfallslega lægri fyrir hvern aðila sem fjárfestir í sjóðnum. Þú nýtur þannig góðs af sérþekkingu þeirra sem reka sjóðinn, án þess að þurfa að fylgjast með þróun fjármálamarkaða.

Einnig er skattalegt hagræði fyrir einstaklinga af því að fjárfesta í sjóðum þar sem þú greiðir ekki fjármagnstekjuskatt þegar sjóðurinn kaupir og selur eða þegar fyrirtæki sem keypt er í greiða arð. Þú greiðir einungis fjármagnstekjuskatt af söluhagnaði þegar þú selur eign þína í sjóðnum, ekki fyrr.

Umsýslan á skattframtalinu er ennfremur sáraeinföld með sjóðum þar sem Spesía sendir upplýsingar til skattsins um eign þín sem birtast svo útfylltar á skattframtalinu þínu.

Gengið á fjárfestingarstefnum (sjóðum) Spesíu er reiknað af vörsluaðila á hverjum virkum degi út frá virði eignasafsins í lok dags. En þess á milli (innan dags) þá leitast Spesía við að áætla virðisbreytingar eignasafnsins og sýnir áætlaða stöðu þess nálægt rauntíma.

Við erum ekki að finna upp hjólið. Aðferðafræði Spesíu byggir á áratuga rannsóknum á fjárfestingum og gögnum um hvernig markaðir og fjárfestar hafa raunverulega hagað sér - ekki tilfinningu, spádómum eða heppni.

Við fjárfestum í ódýrum vísitölusjóðum með mikilli, alþjóðlegri dreifingu, og blöndum erlendum hlutabréfum og íslenskum ríkisskuldabréfum í hlutföllum sem taka mið af tímaramma og áhættuvilja hvers og eins. Ekkert veðmál á einstök félög, engin tilraun til að spá fyrir um markaðinn frá degi til dags, heldur agi, áhættudreifing og lágur kostnaður, sem gögnin sýna að skila sér best til lengri tíma litið.

Lestu nánar um aðferðafræðina hér.

Hlutabréfahluti eignasafnsins er í erlendum gjaldmiðlum og því hefur gengi krónunnar áhrif á virði hans mælt í krónum. Ef krónan veikist, þá hækkar virði erlendu eignanna í krónum talið, ef hún styrkist, þá lækkar það. 

Fyrir íslensk heimili er þetta kostur frekar en galli. Þar sem tekjur og gjöld eru í krónum, veitir alþjóðlegt eignasafn ákveðna vörn gegn áföllum í íslenska hagkerfinu, því krónan hefur tilhneigingu til að falla í slíkum aðstæðum.

Spesía fjárfestir í alþjóðlegum hlutabréfum í gegnum nokkra vísitölusjóði sem hafa lág gjöld þannig að niðurstaðan verður vel dreift alþjóðlegt eignasafn sem mætti kalla heimssafn hlutabréfa. Safnið inniheldur hlutabréf í þúsundum fyrirtækja um allan heim, þar á meðal í Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu.

Spesía fjárfestir fyrir þig í alþjóðlegum hlutabréfum og íslenskum ríkisskuldabréfum í mismunandi hlutföllum eftir fjárfestingaleiðum. Spesía fjárfestir í alþjóðlegum hlutabréfum í gegnum nokkra vísitölusjóði sem hafa lág gjöld þannig að niðurstaðan verður vel dreift alþjóðlegt eignasafn sem mætti kalla heimssafn hlutabréfa. Safnið inniheldur hlutabréf í þúsundum fyrirtækja um allan heim, þar á meðal í Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu. Spesía fjárfestir einnig í íslenskum ríkisskuldabréfum. Þú getur séð nákvæma samsetningu á eignasafninu þínu (þ.e. í hvaða fyrirtækjum og skuldabréfum er fjárfest og fyrir hversu mikið) á hverjum tíma inn á mínum síðum undir "Eignasafn".

Ekki eins og er en við stefnum á að gera það síðar.

Fjárfesting með Spesíu hentar vel þegar fjárfest er til lengri tíma en eins til tveggja ára. Því lengri tími, því meiri líkur á að skammtímasveiflur jafnist út og þú njótir góðrar langtímaávöxtunar fjármálamarkaða. 

Þeir peningar sem að þú ættir ekki að fjárfesta eru þeir sem þú gætir þurft að grípa til með stuttum fyrirvara; varasjóð, útborgun sem á að nota á næstunni, eða peninga sem þú þolir alls ekki að tapa, t.d. Þegar þú geymir þá fyrir aðra. Þá er skynsamlegra að geyma á sparnaðarreikningi. Ekki vegna þess að sjóðir séu slæmir, heldur vegna þess að þú vilt ekki lenda í því að þurfa að selja á versta tíma.

Gjöld

Já, ávöxtun og staða reiknings á hverjum tíma endurspeglar ávallt virði eignasafnsins þíns eftir að allur kostnaður hefur verið dreginn frá. Talan sem að þú sérð er einfaldlega það sem þú færð ef þú tekur út fyrir utan að haldið er eftir fjármagnstekjuskatti af söluhagnaði ef hann er til staðar þegar þú selur.

Nei. Það kostar ekkert að stofna reikning, leggja inn, taka út eða hætta hjá Spesíu. Sjá má verðskrá Spesíu [lendingarsíða].

Verðskrá Spesíu er afar einföld. Þóknun Spesíu skiptist í tvennt: sjóðastýringargjald og eignastýringargjald. Að auki fellur til smávægilegur kostnaður inni í sjóðunum sjálfum vegna kaupa og sölu eigna, en Spesía tekur engar sérstakar þóknanir við kaup eða sölu og það eru engin önnur falin gjöld. Þú sérð nákvæmlega hvað þú borgar, alltaf.

Markmið Spesíu er að vera lang hagkvæmasti kosturinn á Íslandi svo að stærstur hluti ávöxtunarinnar skili sér til fjárfesta. Verðskrá Spesíu má finna hér.

Þóknun Spesíu skiptist í sjóðastýringargjald og eignastýringargjald. Að auki fellur til smávægilegur kostnaður inni í sjóðunum vegna kaupa og sölu eigna.

Gjöldin reiknast sem hlutfall af heildareignum þínum í sjóðnum og eru dregin frá daglega. Þú færð ekki sendan sérstakan reikning, heldur lækkar kostnaðurinn gengi sjóðsins og virði eignasafnins þíns á hverjum tíma er virðið að frádregnum gjöldum.

Sambærilegir verðbréfasjóðir á Íslandi eru að jafnaði mun dýrari, oftast með gjöld á bilinu 2–3% á ári (m.v. ágúst 2026). Spesía áætlar að allt að tveir þriðju af raunávöxtun fjárfesta í íslenskum sjóðum á þessari öld hafi endað hjá bönkum og sjóðum í formi gjalda.

Markmið Spesíu er að vera hagkvæmasti kosturinn á Íslandi, svo stærstur hluti ávöxtunarinnar skili sér til fjárfesta.

Nei. Allir borga sama hlutfall af heildareignum í sjóði, óháð upphæð sem lögð er inn.

Innborganir og úttektir

Þegar þú óskar eftir úttekt skráir þú inn upplýsingar um þann bankareikning sem að þú vilt að úttektin greiðist inn á. Reikningurinn þarf að vera íslenskur og í þínu nafni.

Nei. Það er enginn binditími og ekkert gjald við úttekt. Eina sem tekur tíma er sjálf afgreiðslan, allt að tveir virkir dagar frá úttektarbeiðni.

Það skal þó hafa í huga að fjárfesting með Spesíu er hugsuð til lengri tíma en eins til tveggja ára þar sem að skammtímasveiflur geta unnið gegn þér.

Nei það er ekki hægt eins og er.

Já, þú getur tekið út hvaða fjárhæð sem er.

Já, þú getur óskað eftir úttekt hvenær sem er. Við seljum þá hluta af eignasafninu þínu og millifærum peningana inn á reikninginn þinn innan tveggja virkra daga frá úttektarbeiðni.

Eftir að þú hefur lagt inn á Spesíu reikninginn fjárfestir Spesía upphæðinni í samræmi við þá fjárfestingarstefnu sem þú valdir en það tekur einn til tvo virka daga. 

Inni á mínum síðum og í appinu sérðu yfirlit yfir allar innborganir og úttektir, bæði þær sem eru afgreiddar og þær sem eru í vinnslu. Millifærslurnar sérð þú með því að smella á "millifærslur" í veftréinu vinstra megin á skjánum.

Þú getur lagt inn á Spesíu reikninginn þinn með því að skrá þig inn á aðganginn þinn í gegnum Spesia.is eða appið.

Þú byrjar á að skrá þig inn með rafrænum skilríkjum, velur „millifæra“ efst í hægra horninu og síðan „innborgun“. Þar getur þú framkvæmt venjulega millifærslu með netbanka eða appi.

Þegar þú leggur inn er öll upphæðin notuð til að kaupa í sjóðnum sem samsvarar þeirri fjárfestingarstefnu sem þú hefur valið.

Þú óskar eftir úttekt inni á mínum síðum eða í appinu.

  1. Skráðu þig inn á Spesíu aðganginn þinn með rafrænum skilríkjum
  2. Veldu "millifæra" efst í hægra horninu og síðan "úttekt"
  3. Þar setur þú inn hve mikið þú vilt taka út af reikningnum þínum

Við seljum þá í sjóðnum og millifærum söluandvirðið, að frádregnum fjármagnstekjuskatti af söluhagnaði ef hann er til staðar, inn á bankareikninginn þinn innan tveggja virkra daga frá beiðninni.

Mánaðarleg áskrift

Því þá þarft þú ekki að spá í tímasetningunni. Þegar þú kaupir reglulega dreifast kaupin sjálfkrafa yfir bæði háa og lága punkta á markaðnum, svo að líkurnar á að lenda á versta tímanum minnka.

Auk þess verður sparnaðurinn að vana, þú þarft ekki að taka ákvörðun um hann hver mánaðarmót og algengt er að fólk endi með að leggja meira fyrir með þessum hætti.

Það gæti verið vegna þess að ekki er næg innistæða á bankareikningnum sem áskriftin er tengd við, eða tímamörkin sem að þú settir fyrir áskriftina eru liðin. Athugaðu innistæðuna á bankareikningnum þínum, eða hvort að þú þurfir að framlengja áskriftina.

Já, þú getur sett upp sjálfvirka viku- eða mánaðarlega innlögn inn á fjárfestinga reikninginn þinn. Þú velur upphæðina og tíðni innlagna og við munum fjárfesta upphæðinni samkvæmt þeirri fjárfestingastefnu sem að þú hefur valið. Lágmarksupphæð í áskrift eru 5 þúsund krónur. Hér má finna frekari leiðbeiningar.

Já, þú getur stjórnað áskriftinni í netbankanum þínum. Þar getur þú gert hlé á henni, breytt upphæð eða dagsetningu, hætt áskriftinni, eða breytt um reikningsnúmer sem hún er tengd við. Sjá nánar í leiðbeiningum um hvernig á búa til sjálfvirka mánaðarlega innlögn á Spesíu reikninginn þinn hér.

Við erum búin að útbúa leiðbeiningar hérna fyrir helstu banka á Íslandi.

Skrefin eru sambærileg hjá flestum bönkum og ef þinn banki er ekki í listanum, þá ættu skrefin samt sem áður að vera keimlík. En láttu okkur vita ef þú þarft hjálp.

Öryggi og eftirlit

Já. Spesía starfar með starfsleyfi frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og sætir stöðugu eftirliti þess.

Allar eignir sem keyptar eru fyrir þitt fé eru skráðar á þitt nafn og geymdar hjá sjálfstæðum vörsluaðila (T plús) sem hlotið hefur starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu sem slíkur. Þetta þýðir að jafnvel þó eitthvað kæmi upp á hjá Spesíu eru fjárfestingar þínar ávallt þín eign og ekki hluti af eignum Spesíu og þær eru þér ávallt aðgengilegar.

Virði eignasafns þíns hjá Spesíu kann hins vegar að sveiflast í takt við sveiflur fjármálamarkaða og hversu áhættusama fjárfestingarleið þú velur. Eignasafnið getur bæði hækkað og lækkað í verði þó það hækki yfirleitt til lengri tíma litið.

Nei, fjárfestingar í hlutabréfum, skuldabréfum, sjóðum og öðrum fjármálagerningum eru ekki tryggðar á sama hátt og bankainnistæður. Ólíkt bankainnistæðum er eignasafnið þitt hins vegar ávallt í þinni eigu (skráð á þínu nafni) og aðskilið frá eignum og efnahag Spesíu og því ekki hætta á að það glatist ef Spesía lendir í vandræðum. Virði eignasafnins getur svo bæði hækkað og lækkað og þú gætir fengið minna til baka en þú lagðir inn þó það hækki oftast til lengri tíma litið.

Persónuvernd og upplýsingaöryggi eru eins og best verður á kosið og eru hornsteinar í allri starfsemi Spesíu. Að auki starfar Spesía eftir lögum um persónuvernd og hefur sett sér sérstaka persónuverndarstefnu, sem lesa má hér.

Já. Sættir þú þig ekki við meðhöndlun Spesíu á kvörtun er hægt að vísa málinu til úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki. Upplýsingar um nefndina og hvernig má senda henni erindi er að finna á www.nefndir.is

Nei. Spesía varðveitir ekki fé þitt á eigin reikningum, því er varslað hjá óháðum vörsluaðila (T plús). Úttektir eru alltaf greiddar inn á bankareikning í þínu nafni.

Eignasafnið þitt er þín eign, skráð á þitt nafn og í vörslu hjá óháðum vörsluaðila (T plús). Það er ekki hluti af eignum Spesíu og gengur því ekki upp í skuldir félagsins ef illa fer.

Spesía biður þig aldrei um að gefa upp viðkvæmar upplýsingar í gegnum tölvupósti eða SMS. Við hringjum heldur aldrei og biðjum þig um að millifæra peninga.

Ef þú færð slík skilaboð skaltu ekki svara þeim eða smella á neitt, heldur hafa samband við okkur beint á support@spesia.is.

Við viljum endilega heyra frá þér ef svo er og fá tækifæri til að leysa málið ef hægt er. Ef þú ert ekki ánægð/ur með þjónustuna geturðu haft samband við okkur á kvartanir@spesia.is. Við tökum kvörtunum alvarlega, Regluvörður Spesíu fer yfir málið og þú færð svar eins fljótt og auðið er.

Skattar

Já, ef þú hefur íslenska kennitölu, rafræn skilríki og ert 18 ára eða eldri. En athugaðu að við höldum samt eftir 22% fjármagnstekjuskatti hjá öllum viðskiptavinum þegar hagnaður er innleystur. Ef þú átt að borga lægri skatt á Íslandi vegna skattalegrar heimilisfesti annars staðar og/eða tvísköttunarsamninga þarft þú að gera grein fyrir því sjálf/ur á þínu íslenska skattframtali og sækja leiðréttingu til RSK við álagningu.

Já, í flestum tilvikum. Ef að þú skiptir um fjárfestingarstefnu er núverandi eignasafn selt og nýtt keypt í samræmi við nýju stefnuna. Ef söluhagnaður myndast á þeim eignum sem seldar eru fellur til fjármagnstekjuskattur af honum, líkt og við aðrar úttektir. Ef engin ávöxtun hefur enn myndast, eða ef eignirnar eru seldar með tapi, fellur enginn skattur til við skiptin.

Við úttekt. Þú greiðir fjármagnstekjuskatt af söluhagnaði þegar þú selur, ekki fyrr, og Spesía heldur honum eftir sjálfkrafa fyrir þig og skilar svo til skattayfirvalda.

Þetta er öðruvísi en á sparnaðarreikningum, þar sem vextir eru greiddir og skattlagðir a.m.k. árlega. Munurinn skiptir máli til lengri tíma litið, ávöxtunin sem annars færi í skatt heldur áfram að ávaxtast fyrir þig þar til þú tekur út.

Allur arður, vextir og aðrar tekjur af undirliggjandi eignum sjóða Spesíu eru endurfjárfestar í sjóðunum sjálfum og endurspeglast í gengi þeirra. Þar sem sjóðirnir greiða ekki út arð þarf þú ekki að hafa áhyggjur af því að skrá arðgreiðslur í skattframtalið.

Spesía sendir upplýsingar til Skattins svo allt er fyllt út sjálfkrafa á skattframtalinu. Fjárfesting hjá Spesíu birtist á skattframtalinu þínu sem eign í sjóði, rétt eins og aðrir sjóðir og svipað og innistæður á bankareikningum. Ef hagnaður myndast við úttekt (sölu eigna) á árinu heldur Spesía eftir fjármagnstekjuskatti af söluhagnaðinum og kemur honum til skila og gert er grein fyrir því sjálfkrafa á skattframtalinu.

Nei, frítekjumark fjármagnstekna nýtist ekki við fjárfestingu í blönduðum sjóði eins og Spesía bíður upp á.

Fjármagnstekjuskattur einstaklinga á Íslandi er 22% og heldur Spesía honum eftir sjálfkrafa og skilar til skattayfirvalda þegar þú tekur út af Spesía reikningnum þínum og selt er með hagnaði. Ávöxtun er ekki skattskyld fyrr en við sölu þegar hún raungerist.

Já, almennt eru tekjur af fjárfestingum, til dæmis söluhagnaður sjóða, skattskyldar sem fjármagnstekjur hjá einstaklingum. Fjármagnstekjuskattur einstaklinga á Íslandi er 22% og heldur Spesía honum eftir sjálfkrafa og skilar til skattayfirvalda þegar þú tekur út af Spesía reikningnum þínum og selt er með hagnaði. Ávöxtun er ekki skattskyld fyrr en við sölu þegar hún raungerist. Að því leytinu er það skattalega hagkvæmara að ávaxta fé í sjóðum miðað við sparnaðarreikninga þar sem ávöxtun (vextir eru greiddir) raungerist árlega.

Spesíu reikningurinn minn

Já, þú getur notað Spesíu í bæði í appinu og á www.spesia.is. Appið virkar bæði fyrir Android og iPhone og þú getur sótt það hérna.

Já, það er hægt. Til þess þarftu að hafa samband við support@spesia.is.

Ef þú hefur nú þegar byrjað að fjárfesta felur breytingin í sér að núverandi eignir eru seldar og nýjar keyptar í samræmi við nýju stefnuna. Það getur haft í för með sér skattaleg áhrif ef að hagnaður hefur myndast við sölu.

Nei það er ekki hægt.

Nei ekki eins og er, kannski seinna.

Þú heldur þínum reikning hjá Spesíu svo lengi sem að þú hefur íslenska kennitölu, rafræn skilríki, íslenskan bankareikning og ert 18 ára eða eldri. En athugaðu að við höldum samt eftir 22% fjármagnstekjuskatti hjá öllum viðskiptavinum þegar hagnaður er innleystur. Ef þú átt að borga lægri skatt á Íslandi vegna skattalegrar heimilisfesti annars staðar og/eða tvísköttunarsamninga þarft þú að gera grein fyrir því sjálf/ur á þínu íslenska skattframtali og sækja leiðréttingu til RSK við álagningu.

Aðstandandi eða fulltrúi dánarbúsins hefur samband við okkur á spesia@spesia.is. Við aðstoðum þá við að koma eignum í dánarbúið og leiðbeinum um næstu skref.

Þú getur breytt þessum upplýsingum inn á Spesíu aðganginum þínum. Skráðu þig inn, smelltu á táknið efst í hægra horninu og veldu svo „mínar upplýsingar". Þar getur þú uppfært bæði netfang og símanúmer.

Þú getur hætt viðskiptum við Spesíu hvenær sem er. Þú tekur út allar eignir af reikningnum þínum og sendir svo skriflega beiðni til okkar á support@spesia.is þar sem þú óskar eftir að aðgangi þínum verði lokað.

Það er enginn uppsagnarfrestur og ekkert gjald tekið fyrir að loka aðgangi. Athugaðu að ef að söluhagnaður myndast við úttektina heldur Spesía eftir fjármagnstekjuskatti af honum, eins og við aðrar úttektir.

Almennt séð eru persónuupplýsingar geymdar í 5-7 ár frá lokum viðskiptasambands, með hliðsjón af þeim lögum sem gilda um starfsemina. Sjá nánar í persónuverndarstefnu Spesíu

Um Spesíu

Já, að fræða fólk um fjárfestingar og hvetja það til að fjárfesta á skynsamlegan hátt er ein af aðalástæðunum fyrir því að við stofnuðum Spesíu. Við byrjum smátt en stefnum á að auka fræðsluna verulega með tímanum.

Já. Fyrirtækið er íslenskt og starfsemi Spesíu er háð íslenskum lögum og reglum ásamt leyfi og eftirliti frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Spesía er ennfremur að öllu leyti í eigu íslenskra aðila, aðallega stofnenda og starfsfólks. Þjónusta félagsins er hugsuð til að mæta þörfum íslenskra fjárfesta og sparifjáreigenda.

Spesía hentar þeim sem að vilja fjárfesta til lengri tíma en eins til tveggja ára, í vel dreifðu alþjóðlegu eignasafni og kjósa óvirka, langtíma fjárfestingaraðferð.

Við ráðleggjum ekki að fjárfesta peningum sem þú gætir þurft að grípa til með stuttum fyrirvara. Spesía hentar heldur ekki þeim sem vilja velja einstök félög, stunda tíð kaup og sölu eða veðja á tiltekna geira eða þróun á markaði. Markmið okkar er ekki að vera hefðbundinn „trading" vettvangur, heldur að styðja við langtíma, óvirka fjárfestingu.

Spesía er íslensk fjárfestingaþjónusta sem gerir þér kleift að fjárfesta í vel dreifðu alþjóðlegu eignasafni hlutabréfa og skuldabréfa með einföldum hætti og gegn lágum gjöldum. Við sjáum um allt það flókna með sjálfvirkri ráðgjöf og eignastýringu , svo að þú þarft ekki að vera sérfræðingur til að byrja. Að fjárfesta með Spesíu er jafn einfalt og að nota venjulega bankareikninga og hentar mjög vel þegar fjárfest er til lengri tíma en tveggja ára.

Spesía er að mestu í eigu stofnenda og starfsmanna. Stofnandi og forstjóri Spesíu er Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í heimilisfjármálum og stofnandi og fyrrum forstjóri Meniga. Tómas Áki Gestsson er stofnandi og fjárfestingastjóri, en hann hefur starfað í margvíslegum störfum innan íslensks fjármálamarkaðar, síðast hjá Seðlabankanum. Aðrir meðstofnendur og eigendur eru Peter Short tæknistjóri fyrirtækisins, Bergur Ebbi sem sinnir markaðs- og kynningarmálum og Tinna Karen Gunnarsdóttir sem leiðir framendaforritun. 

Að auki eiga rúmlega 20 fjárfestar, aðallega einstaklingar og fjölskyldufyrirtæki, hlut í Spesíu. Þar á meðal eru Arnar Þór Másson og fyrirtæki Guðmundar Fertram Sigurjónssonar en þeir sitja báðir í stjórn Spesíu. 

Spesía er sjálfstætt og óháð fyrirtæki og ekki í eigu íslenskra banka eða hluti af hinu hefðbundna íslenska bankakerfi.

Við tökum árlega þóknun af virði eignasafnanna. Við tökum þó engar þóknanir við kaup eða sölu, engin sölulaun eða annað.

Það þýðir að hagsmunir okkar og þínir fara saman, tekjur okkar vaxa aðeins ef eignasafnið þitt vex.

Flestir sambærilegur verðbréfasjóðir á Íslandi í rekstri bankanna eða annarra eru mun dýrari en sjóðir Spesíu og innihalda oft mikið af íslenskum hlutabréfum, en flest eigum við nóg af þeim í gegnum lífeyrissjóðina. Spesía veitir þér kost á að fjárfesta í vel dreifðu alþjóðlegu eignasafni með miklu lægri kostnaði en gengur og gerist.

Nei, þjónusta Spesíu er sérstaklega hönnuð fyrir fólk sem vill fjárfesta án þess að þurfa að vera sérfræðingar í fjármálamörkuðum eða verðbréfaviðskiptum. Við leggjum áherslu á fræðslu og að útskýra hlutina á mannamáli og það er jafn auðvelt að fjárfesta með Spesíu og að leggja inn á venjulega bankareikninga.

Sendu okkur skilaboð ef þú finnur ekki svarið.
Rannís logoSeðlabanki logo

Starfsemi Spesíu er háð starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu og Spesía hefur hlotið styrki frá Tækniþróunarsjóði Rannís.


Rannís logoSeðlabanki logo

Starfsemi Spesíu er háð starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu og Spesía hefur hlotið styrki frá Tækniþróunarsjóði Rannís.


© Spesía eignastýring hf. 2024-2026. Allur réttur áskilinn.

Persónuverndarstefna

•

Vefkökuskilmálar

•