Fyrirtækið Spesía
Spesía er íslenskt fjártækni- og fjármálafyrirtæki sem býður upp á sjálfvirka eignastýringu og fjárfestingarþjónustu fyrir einstaklinga. Þjónusta félagsins er hugsuð til að mæta þörfum íslenskra fjárfesta og sparifjáreigenda. Hér má finna helstu upplýsingar um félögin á bak við Spesíu, eignarhald þeirra og stjórnir.
Spesía Invest ehf.
Móðurfélag - eignarhaldsfélag
Spesía eignastýring hf.
Dótturfélag sem rekur þjónustu Spesíu á Íslandi
Starfsemi Spesíu er háð íslenskum lögum og reglum ásamt leyfi og eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Starfsemi Spesíu fer fram innan samstæðu tveggja félaga:
er móðurfélag samstæðunnar. Félagið er eignarhaldsfélag sem á 100% hlutafjár í Spesíu eignastýringu hf. Hluthafar Spesíu eiga hlut sinn í gegnum Spesíu Invest ehf.
Stjórn Spesíu eignastýringar hf.
- Arna Grímsdóttir, stjórnarformaður
- Diljá Ragnarsdóttir, meðstjórnandi
- Freyr Hermannsson, meðstjórnandi
- Ingvar Guðmundsson, varamaður
- Magnús Þorlákur Lúðvíksson, varamaður
er dótturfélag Spesíu Invest ehf. og rekur þjónustu Spesíu á Íslandi. Félagið hefur starfsleyfi frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða, auk viðbótarstarfsheimilda til að sinna eignastýringu og fjárfestingarráðgjöf, og er sá lögaðili sem ber ábyrgð á þjónustunni á Íslandi og viðskiptavinir Spesíu eiga í samningssambandi við.
Stjórn Spesíu Invest ehf.
- Arnar Þór Másson, stjórnarformaður
- Guðmundur Fertram Sigurjónsson, meðstjórnandi
- Líney Inga Arnórsdóttir, meðstjórnandi
- Tómas Áki Gestsson, meðstjórnandi
Eignarhald
Spesía er íslenskt fyrirtæki og að öllu leyti í eigu íslenskra aðila, að mestu stofnenda og starfsfólks. Félagið er sjálfstætt og óháð og ekki hluti af hinu hefðbundna íslenska bankakerfi.
Stofnandi og forstjóri Spesíu er Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í heimilisfjármálum og stofnandi og fyrrum forstjóri Meniga. Tómas Áki Gestsson er stofnandi og fjárfestingastjóri, en hann hefur starfað í margvíslegum störfum innan íslensks fjármálamarkaðar, síðast hjá Seðlabanka Íslands.
Aðrir meðstofnendur og eigendur eru Peter Short, tæknistjóri fyrirtækisins, Bergur Ebbi, sem sinnir markaðs- og kynningarmálum, og Tinna Karen Gunnarsdóttir, sem leiðir framendaforritun. Nánari upplýsingar um starfsfólk og stjórnendur má finna á síðunni Teymið.
Að auki eiga rúmlega 20 fjárfestar, aðallega einstaklingar og fjölskyldufyrirtæki, hlut í Spesíu. Þar á meðal eru Arnar Þór Másson og fyrirtæki Guðmundar Fertram Sigurjónssonar, en þeir sitja báðir í stjórn Spesíu Invest ehf.