Skilmálar
Vefkökustefna
Síðast uppfært: 27 October 2025
Við notum vefkökur til að bæta upplifun notenda af vefsíðunni, m.a. með því að safna og greina upplýsingar um notkun og virkni vefsíðunnar í þeim tilgangi að bæta hana. Einnig til að auðvelda notkun hennar, til að geta munað þínar stillinga, til að geta notað lausnir frá samfélagsmiðlum og til að bæta efnistök, og til að birta viðeigandi markaðsefni.
Hvað eru vefkökur?
Vefkökur eru litlar textaskrár sem vistast þegar þú heimsækir vefsíður. Þær gera vefsíðunni kleift að safna upplýsingum um aðgerðir á vefsíðunni þannig að næst þegar þú heimsækir hana ber vefsíðan kennsl þær. Tæknin sem aflar þessara ganga felst í notkun vefkaka (e. Cookies).
Hvers vegna notar Spesía vefkökur?
Sumar vefkökur eru nauðsynlegar til þess að vefsíðan virki eðlilega og því virkjast þær sjálfkrafa þegar þú heimsækir hana. Dæmi um nauðsynlegar vefkökur eru tölfræðikökur og virknikökur sem virkja eiginleika vefsvæðisins og eru því forsenda fyrir notkun og byggjast þar með á lögmætum hagsmunum Spesíu. Þær eru oftast vefkökur frá fyrsta aðila (e. 1st party cookies), sem þýðir að þær koma frá sama léni og vefsíðan sem þú heimsækir.
Vefkökur frá fyrsta aðila geta þó verið fleiri en þær sem nauðsynlegar eru. Þær eru notaðar til þess að auðvelda þér innskráningu á notendavef Spesíu, muna hvaða tungumál þú vilt og aðrar stillingar, ásamt því að bæta upplifun og notkun þína á öllu því sem er í boði á síðunni. Þrátt fyrir að þær séu ekki forsenda fyrir notkun svæðisins eru þær engu að síður mikilvægar því þær gera vefsíðuna notendavænni fyrir þig.
Vefkökur frá þriðja aðila (e. 3rd party cookies) koma frá öðrum lénum sem Spesía kaupir þjónustu af, t.d. greiningar- og markaðsefniskökur. Þriðji aðili getur einnig borið kennsl á tækið þitt þegar þú heimsækir vefsíðuna. Þær eru notaðar til þess að greina notkun á síðunni (greiningarkökur) og til að skilja enn betur hvernig vefsíðan er notuð og t.a.m. hversu áhrifaríkt markaðsefni okkar er. Þær hjálpa Spesíu við að bæta upplifun þína enn frekar og sníða markaðsefni að ákveðnum markhópum.
Hvernig notar Spesía vefkökur?
Spesía notar vefkökur á vefsvæði sínu með þjónustu greiningarþjónustunnar Amplitude og öðrum sambærilegum aðilum. Þú getur alltaf farið í stillingar á vefkökum í vafranum þínum og valið að hafna, eða draga til baka fyrra samþykki þitt, á vefkökum sem eru ekki nauðsynlegar. Þriðju aðilar sem veita greiningar- og markaðsþjónustu á netinu nota einnig sínar vefkökur og til þess að hafna þeim þarf að fara í stillingar á vefsíðum þeirra.
Vefkökur innihalda almennt ekki persónugreinanlegar upplýsingar en Spesía tryggir að allar persónuupplýsingar sem kunna að verða til við notkun á vefkökum verða meðhöndlaðar og unnar með í samræmi við ákvæði laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 og persónuverndarstefnu félagsins.
Fjarskiptastofa hefur eftirlit með nýtingu vefkaka og hvort heimild sé til staðar fyrir notkun þeirra samkvæmt lögum nr. 70/2022 um fjarskipti.