Opnar fljótlega
Skilmálar

Notkunarskilmálar

Síðast uppfært: 11 June 2026

Hér fyrir neðan eru útlistaðir þeir skilmálar sem eiga við um aðgang þinn og notkun á þjónustu á vefnum www.spesia.is og snjallsímaforritum sem íslenska hlutafélagið Spesía eignastýring hf. (kt. 430924-0440), Grandagarði 16, 101 Reykjavík á og rekur. Með því að nota þjónustuna samþykkir þú að hlíta öllum notkunarskilmálum Spesíu eins og þeir eru á hverjum tíma.

Skilmálarnir eru í samræmi við þau lög sem Spesíu ber að fylgja. Hugtök sem eru skilgreind í lögum um markaði fyrir fjármálagerninga, eða reglugerðum eða reglum sem settar eru á grundvelli þeirra, skulu hafa sömu merkingu hér, nema annað sé tekið fram eða leiði af samhengi eða eðli máls.

Fjárfestingarþjónusta Spesíu er hönnuð til að einfalda einstaklingum að fjárfesta í eignasafni sem er sniðið að þeirra þörfum, en líka til að efla þekkingu og sjálfstraust einstaklinga þegar kemur að fjárfestingum. Þjónustan felst í bæði fjárfestingarráðgjöf og eignastýringu þar sem fjárfest er í sérhæfðum sjóðum fyrir almenna fjárfesta sem Spesía rekur en slík starfsemi er leyfisskyld af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.

1. Gildissvið

1.1. Skilmálar þessir ná utan um  fjárfestingarþjónustu í skilningi laga um markaði fyrir fjármálagerninga nr. 115/2021 og tengdra reglugerða.

1.2. Sérstakir skilmálar eða samningar um tiltekna fjármálaþjónustu kunna að gilda samhliða þessum skilmálum. Komi upp ósamræmi milli þessara skilmála og ákvæði annarra samninga/skilmála um tiltekin viðskipti eða þjónustu sem Spesía veitir skulu þessir almennu skilmálar víkja fyrir hinum sértækari.

1.3. Spesía hefur starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða fyrir almenning, ásamt viðbótarstarfsheimildum til eignastýringar og fjárfestingaráðgjafar samkvæmt lögum nr. 45/2020.

1.4. Skilmálar þessir ná utan um fjárfestingarþjónustu í skilningi laga um markaði fyrir fjármálagerninga nr. 115/2021 og tengdra reglugerða.

2. Um Spesíu

2.1. Spesía hefur starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða fyrir almenning, ásamt viðbótarstarfsheimildum til eignastýringar og fjárfestingaráðgjafar samkvæmt lögum nr. 45/2020.

2.2. Spesía sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands í samræmi við framangreint og lög um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi nr. 87/1998. Nánari upplýsingar er hægt að finna á heimasíðu eftirlitsins (https://sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit/).

2.3. Spesía áskilur sér rétt til að fela  móður-, dóttur-, eða hlutdeildarfélagi sínu eða utanaðkomandi þjónustuaðilum umsjón afmarkaðra þjónustuþátta í samræmi við starfsleyfi og gildandi lög og reglur.

2.4. Almennar upplýsingar um Spesíu:

Spesía eignastýring hf.

Kennitala: 430924-0440

Grandagarður 16, 101 Reykjavík

Sími: 698 5199

Heimasíða: www.spesia.is

Netfang: spesia@spesia.is

LEI auðkenni: 64881NX91B9XPNO34454

3. Þjónusta Spesíu

3.1. Spesía veitir samþætta fjárfestingaráðgjöf og eignastýringarþjónustu með sjálfvirkum hætti.

3.2. Hin sjálfvirka fjárfestingaráðgjöf byggir á hæfismati sem tekur mið af svörum þínum við spurningalista sem metur fjárhagsstöðu, þekkingu og reynslu af fjárfestingum, markmið og áhættuvilja í samræmi við MiFID-reglugerðir. MiFID-reglugerðirnar eru yfirgripsmiklar reglur um fjármálamarkaði, settar af Evrópusambandinu, með það að markmiði að auka gagnsæi, styrkja fjárfestavernd og bæta skilvirkni markaða.

3.3. Eignastýringin felur í sér að Spesía ráðstafar þeim fjármunum sem þú leggur inn á reikning þinn hjá Spesíu á grundvelli umboðs frá þér í skriflegum samningi og felst í að fjárfest er, í gegnum viðurkenndan vörsluaðila, samkvæmt þeirri fjárfestingarstefnu sem þú velur þegar þú stofnar reikning hjá Spesíu. Nánari ákvæði um þjónustuna er að finna í samningi um fjárfestingaþjónustu sem er hluti af því ferli að stofna reikning hjá Spesíu.

3.4. Fjármunir og fjármálagerningar þínir eru varðveittir hjá viðurkenndur vörsluaðila og skulu vera aðgreindir frá eignum Spesíu í samræmi við gildandi lög. Spesía tekur ekki við innlánum né varðveitir eignir viðskiptavina á eigin reikningum.

3.5. Spesía áskilur sér rétt til að neita þjónustu við þig eða takmarka hana ef þú samþykkir ekki skilmála þessa eða ef rökstudd ástæða er til að ætla að fyrirhuguð notkun eða viðskipti brjóti í bága við lög, reglur, innri verklag eða henti þér ekki.

4. Skilyrði fyrir notkun þjónustunnar og stofnun aðgangs

4.1. Skilyrði þess að geta stofnað aðgang að þjónustu Spesíu eru eftirfarandi:

  • Þú verður að vera 18 ára eða eldri og vera fjárráða.
  • Þú verður að hafa íslenska kennitölu
  • Þú verður að hafa gild íslensk rafræn skilríki
  • Þú verður að hafa íslenskan bankareikning í þínu nafni

Auk framangreindra skilyrða þarf viðskiptavinur að uppfylla þau skilyrði sem koma fram í samningi um fjárfestingarþjónustu Spesíu, m.a. um hæfismat og áreiðanleikakönnun. Spesía áskilur sér rétt til að neita um þjónustu eða loka aðgangi ef fram kemur að ofangreind skilyrði eru ekki uppfyllt.

4.2. Þú getur stofnað til viðskiptasambands við og aðgang að þjónustu Spesíu rafrænt á vefsvæði Spesíu með því að velja “Stofna reikning” og fara í gegnum ferli sem líkur með undirritun samnings með rafrænum skilríkjum.

4.3. Við stofnun reiknings þarft þú að auðkenna þig með rafrænum skilríkjum og veita ýmsar nauðsynlegar upplýsingar.

5. Flokkun viðskiptavina

5.1. Samkvæmt lögum nr. 115/2021 eru viðskiptavinir flokkaðir í almenna fjárfesta, fagfjárfesta og viðurkennda gagnaðila. Þjónusta Spesíu er ætluð almennum fjárfestum og eru viðskiptavinir Spesíu almennt meðhöndlaðir sem slíkir í tengslum við þjónustuna. Spesía getur þó, eftir því sem við á, endurmetið flokkun viðskiptavinar ef upplýsingar sem liggja fyrir um hann gefa tilefni til þess eða ef viðskiptavinur óskar skriflega eftir annarri flokkun í samræmi við gildandi lög.

5.2. Almennir fjárfestar njóta víðtækustu verndar samkvæmt lögum, þar með talið hámarks upplýsingaskyldu og hæfismats. Í því felst m.a. að Spesía veitir skýrar upplýsingar um Spesíu, þjónustuna og verðlag hennar, fjárfestingakosti sem eru í boði og þá áhættu sem þeim fylgir. Þá ber Spesíu, við veitingu fjárfestingaráðgjafar og eignastýringar, skylda til að meta hvort þjónustan eða tiltekinn fjármálagerningur hæfi markmiðum almenns fjárfestis, reynslu hans, þekkingu og fjárhagslegri stöðu.

6. Áreiðanleikakönnun

6.1. Í samræmi við ákvæði laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018 framkvæmir Spesía áreiðanleikakönnun á viðskiptavinum sínum sem hluta af ferlinu við að stofna reikning hjá Spesíu.

6.2. Veitir þú ekki nauðsynlegar upplýsingar er þér ekki heimilt að stofna til viðskiptasambands. Spesía áskilur sér rétt til að meina þér aðgang að þjónustu, segja upp þjónustu eða takmarka hana verulega ef afhending gagna telst ósamrýmanleg skilmálum Spesíu, lögum eða reglum.

7. Áhætta við fjárfestingar

7.1. Verðmæti fjárfestinga getur hækkað eða lækkað og viðskiptavinur kann að tapa að hluta eða öllu leyti því fé sem hann hefur fjárfest. Ávöxtun fortíðar er ekki trygging fyrir framtíðarávöxtun. Yfirlit yfir eðli og áhættuþætti sjóða Spesíu er aðgengilegt á vefsvæði Spesíu. Nánari ákvæði um áhættu fjárfestinga og ábyrgð viðskiptavinar er að finna í samningi um fjárfestingaþjónustu Spesíu.

8. Þóknanir og gjöld

8.1. Spesía tekur þóknun fyrir þjónustu sína samkvæmt gjaldskrá sem birt er á vefsíðu Spesíu. Nánar er fjallað um þóknanir og gjöld í samningi um fjárfestingaþjónustu Spesíu.

9. Skattar

9.1. Upplýsingar um eignarhluti viðskiptavina í sjóðum Spesíu birtast sjálfkrafa á skattframtölum þeirra. Spesía heldur eftir og skilar fjármagnstekjuskatti af söluhagnaði skv. lögum en þú berð sjálf/ur ábyrgð á greiðslu allra skatta, gjalda eða annarra álaga sem kunna að falla á hagnað fjárfestinga þinna. Nánar er fjallað um skattamál í samningi um fjárfestingaþjónustu Spesíu.

10. Hagsmunaárekstrar

10.1. Spesía leitast við að veita þér þjónustu á faglegan, óhlutdrægan og gagnsæjan hátt. Til að tryggja að hagsmunir þínir séu ávallt hafðir í fyrirrúmi hefur Spesía sett sér stefnu og verklag um greiningu, forvarnir og meðhöndlun mögulegra hagsmunaárekstra, sjá nánar á heimasíðu Spesíu, www.spesia.is. Nánar er fjallað um hagsmunaárekstra í samningi um fjárfestingaþjónustu Spesíu.

11. Öryggisráðstafanir

11.1. Réttur þinn til að fá aðgang að og nota þjónustu Spesíu er bundinn við þig sem einstakling. Þér er ekki heimilt að flytja þann rétt til annars manns eða lögaðila. Þér er einungis heimilt að fá aðgang að og nota þjónustuna í löglegum tilgangi. Nánar er fjallað um öryggisráðstafanir í samningi um fjárfestingaþjónustu Spesíu.

11.2. Spesía ábyrgist ekki órofinn aðgang að þjónustunni. Þó Spesía muni ávallt leitast við að halda ótrufluðum aðgangi þá gæti aðgangur þinn að þjónustu Spesíu rofnað af ýmsum ástæðum, t.d. vegna tæknilegra bilana, vélbúnaðarbilana, hugbúnaðarvillna eða kerfisuppfærslna.

11.3. Þú samþykkir að nota ekki neins konar sjálfvirkan hugbúnað, forrit eða annars konar sjálfvirkar aðferðir til að fá aðgang, afrita eða fylgjast með nokkrum hluta af vefsvæðum eða þjónustu Spesíu nema með skriflegu leyfi Spesíu.

11.4. Þú samþykkir einnig að nota ekki neins konar forrit, hugbúnað eða annars konar aðferðir til að heimsækja, nota eða leita að gögnum á vefsvæði Spesíu nema með snjallsímaforritum Spesíu og almennum vöfrum (t.d. Chrome, Safari eða Edge) og almennum leitarvélum (t.d. Google).

11.5. Þú samþykkir að senda Spesíu engar skrár eða gögn sem gætu flokkast sem skaðlegur hugbúnaður  (s.s. tölvuvírus, tölvuormur, trjóuhestur) eða á einhvern hátt truflað eðlilega virkni þjónustunnar fyrir þig eða aðra notendur. Þér er einnig óheimilt að reyna að sækja, birta eða greina (e. reverse engineer) á annan hátt undirliggjandi forritskóða (e. source code) út frá þeim hugbúnaði sem er notaður í þjónustu Spesíu.

12. Hugverkaréttindi

12.1. Með notkun á þjónustu Spesíu færð þú takmarkað, óframseljanlegt leyfi til að nota vefsvæði Spesíu í þeim eina tilgangi að nýta þjónustuna í samræmi við tilgang hennar og þessa skilmála.

12.2. Allt innihald vefsvæða Spesíu, þar með talið útlitshönnun (t.d. texti, grafík, myndir, vörumerki), ljósmyndir, spurningalistar, reiknirit, hugbúnaður, ritstýrt efni, tilkynningar og önnur gögn sem birtast á vefsvæðum Spesíu eru eign Spesíu og er varið samkvæmt höfundarréttar- og vörumerkjalögum á Íslandi og annars staðar eða notuð samkvæmt leyfi rétthafa.

12.3. Öll afritun, dreifing, birting, breyting, endurútgáfa eða rafræn afritun af innihaldi vefsvæða Spesíu, hvort heldur sem er að hluta eða heild, er með öllu óheimil án skriflegs samþykkis Spesíu.

12.4. Þér er óheimilt að reyna að afrita, breyta, þýða, bakgreina (e. reverse engineer) eða á annan hátt reyna að nálgast kóða, reiknirit eða vinnsluaðferðir Spesíu.

13. Ábyrgð og óviðráðanleg atvik

13.1. Spesía gerir eðlilegar ráðstafanir til að uppfylla skyldur sínar, tryggja áreiðanleika eftir fremsta megni og upplýsa þig ef þjónusta liggur niðri.

13.2. Spesía, stjórnarmenn, stjórnendur og starfsmenn Spesíu bera ekki ábyrgð á tjóni, kostnaði eða útgjöldum sem þú verður fyrir vegna viðskipta eða samninga sem stofnað er til á grundvelli þessa skilmála og/eða samnings um fjárfestingaþjónustu Spesíu, nema tjónið sé bein og fyrirsjáanleg afleiðing samningsbrots, stórkostlegs gáleysis, ásetnings eða svika af hálfu Spesíu eða annars sem ekki verður undanþegið ábyrgð samkvæmt gildandi lögum. Að því marki sem er heimilt skv. gildandi lögum nær ábyrgð Spesíu undir engum kringumstæðum yfir óbeint eða afleitt tjón, svo sem tap á hagnaði, tap á viðskiptatækifærum eða tjón þriðja aðila, hvort sem það á rætur að rekja til vanrækslu, samningsbrots, villandi upplýsinga eða annarra orsaka.

13.3. Spesía ber ekki ábyrgð á tjóni sem hlýst af vanþekkingu, misskilningi eða misnotkun af þinni hálfu, eða rangri upplýsingagjöf þinni eða annars aðila með eða án umboðs þíns.

13.4. Spesía ber ekki ábyrgð á tjóni vegna tæknilegra bilana hjá þriðja aðila, bilunar í uppgjörskerfum eða markaðsaðstæðna sem breytast á meðan fyrirmæli eru til afgreiðslu. Spesía getur ekki alltaf séð fyrir tæknileg vandamál sem kunna að valda því að ekki sé hægt að sækja upplýsingar, gögn kunni að glatast eða rof verði á þjónustu, en gerir allt í sínu valdi til þess að koma í veg fyrir slíkt.

13.5. Spesía ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til óviðráðanlegra ytri atvika (force majeure), sem stafa svo sem af náttúruhamförum, styrjöldum, verkföllum eða annarra atriða sem talin eru falla undir óviðráðanleg tilvik (force majeure).

14. Persónuvernd og þagnarskylda

14.1. Spesía meðhöndlar og vinnur persónuupplýsingar í samræmi við persónuverndarstefnu Spesíu og lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

14.2. Spesíu er heimilt, í samræmi við persónuverndarstefnu Spesíu, að taka saman tölfræðilegar samantektir og aðrar afleiddar ópersónugreinanlegar samantektir án sérstaks samþykkis frá þér og nota í viðskiptalegum tilgangi eða miðla til þriðja aðila enda séu þær aldrei á persónugreinanlegu formi.14.3. Spesía tryggir persónuvernd og viðeigandi öryggi og varðveislu gagna í samræmi við persónuverndarlög og viðurkennda staðla. Í persónuverndarstefnu Spesíu má finna nánari upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar eru unnar, í hvaða tilgangi, á hvaða grundvelli, o.s.frv. Persónuverndarstefnuna má finna á vefsíðu Spesíu, www.spesia.is, og telst hún telst hluti af þessum skilmálum. Með því að nota þjónustu Spesíu og samþykkja skilmála þessa telst þú jafnframt samþykkja persónuverndarstefnu Spesíu.

14.4. Með vísan til 19. gr. b. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 er Spesía og starfsmenn hennar bundin þagnarskyldu um viðskipta- og einkamálefni þín nema skylt sé að veita upplýsingar samanber ákvæði sömu laga um þagnarskyldu starfsmanna fjármálafyrirtækja.

14.5. Þú samþykkir að Spesía getur notað stafræna spurningalista og aðra sjálfvirka vinnslu upplýsinga í tengslum við auðkenningu, hæfismat, ráðgjöf, ákvarðanatöku, áreiðanleikakönnun, samsetningu eignasafna, eftirfylgni, varnir gegn peningaþvætti, skráningu og aðra þjónustu.

15. Upplýsingagjöf og varðveisla upplýsinga

15.1. Þú samþykkir að Spesía geti afhent upplýsingar, skýrslur, tilkynningar, stefnur og aðrar upplýsingar með rafrænum hætti sem telst varanlegur miðill, þar á meðal í gegnum öruggan aðgang á vefsvæði eða í smáforriti, með tölvupósti eða með niðurhali skjala, nema gildandi lög krefjist annars afhendingarmáta. Nánari ákvæði um upplýsingagjöf og varðveislu upplýsinga er að finna í samningi um fjárfestingaþjónustu Spesíu.

15.2. Með því að láta í té netfang þitt áskilur Spesía sér rétt til að senda þér, í samræmi við persónuverndarstefnu Spesíu, tilkynningar og aðrar upplýsingar í samræmi við þessa skilmála eða þegar nauðsyn krefur vegna þjónustunnar.

15.3. Af og til kann Spesía að senda þér nauðsynlegar tilkynningar með rafrænum hætti vegna skráningar og aðgangs þíns eða notkunar á þjónustunni (t.d. þegar aðgangsupplýsingum er breytt) eða aðrar valkvæðar tilkynningar í tengslum við notkun þína á þjónustunni. Þú getur hvenær sem er breytt eða afskráð þig fyrir valkvæðum tilkynningum.

15.4. Spesía reynir eftir fremsta megni að tryggja að tilkynningar berist þér fljótt og örugglega en ábyrgist ekki að tilkynningar berist alltaf eða þær innihaldi ávallt nýjustu eða réttar upplýsingar. Spesía ber enga skaðabótaskyldu vegna tilkynninga sem berast seint eða alls ekki, enda séu mistökin ekki gerð viljandi.

16. Upplýsingar til viðskiptarvinar

16.1. Þú getur ávallt nálgast yfirlit yfir allar þínar innlagnir og úttektir, bæði þeim sem er lokið og þeim sem ennþá eru í vinnslu, á vefsvæði eða smáforriti Spesíu með því að skrá þig inn á reikninginn þinn.

16.2. Færsluyfirlitið sem er hluti af þjónustu Spesíu inniheldur ennfremur upplýsingar sem sýna kostnað og gjöld sem Spesía rukkar fyrir þjónustu sína. Þér ber að tilkynna Spesíu skriflega án tafar ef þú hefur athugasemdir.

16.3. Spesía áskilur sér rétt til að leiðrétta bersýnilegar villur í innlögnum, úttektum eða kostnaði.

17. Uppsögn þjónustu

17.1. Þú getur sagt upp þjónustu Spesíu hvenær sem er með því að taka út allar eignir af reikningi þínum hjá Spesíu og loka aðgangi þínum að þjónustu Spesíu, annað hvort með því að óska eftir að loka aðganginum inni á vefsvæðum eða smáforriti Spesíu eða óska eftir því skriflega við Spesíu.

17.2. Spesía áskilur sér rétt til að segja upp þjónustu við þig með hæfilegum fyrirvara eða tafarlaust ef lög eða reglur krefjast þess, eða ef þú hefur brotið gegn þessum skilmálum. Komi til þess áskilur Spesía sér rétt til að selja eignasafnið þitt hjá Spesíu í heild sinni og millifæra andvirðið inn á reikning sem þú gefur upp.

18. Kvartanir og úrskurðarnefnd

18.1. Spesía hefur sett sér reglur um meðferð kvartana sem eru aðgengilegar á vef Spesíu, www.spesia.is.

18.2. Hafir þú athugasemdir eða ert ósátt/ur með þjónustu, afgreiðslu mála eða hvernig staðið hefur verið að ákveðnum málum getur þú lagt fram kvörtun til Spesíu með því að senda póst á netfangið kvartanir@spesia.is. Regluvörður Spesíu fylgist með kvörtunum og tryggir að þær séu afgreiddar í samræmi við lög og reglur nr. 353/2022 um meðferð kvartana.

18.3. Ef þú ert ósátt/ur við niðurstöðu Spesíu getur þú leitað til Úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki (www.nefndir.is).

19. Framsal réttinda

19.1. Þér er óheimilt að framselja réttindi þín eða skyldur samkvæmt þessum skilmálum eða samningum sem gerðir eru á grundvelli þeirra nema með skriflegu samþykki Spesíu. Sjá nánar í samning um fjárfestingaþjónustu Spesíu.

19.2. Spesía áskilur sér rétt til að útvista eða fela móður-, dóttur-, eða hlutdeildarfélagi sínu eða utanaðkomandi þjónustuaðilum umsjón verkefna sem tengjast veitinguþjónustunnar, þar á meðal upplýsingatækni, auðkenningarferlum, skýjaþjónustu, umsýslu, viðskiptaframkvæmd, samskiptum við viðskiptavini og vinnslu gagna. Útvistun samkvæmt framangreindu leysir Spesía ekki undan ábyrgð gagnvart viðskiptavini og skal vera í samræmi við starfsleyfi og gildandi lög.

20. Réttarúrræði notenda og úrlausn ágreiningsmála

20.1. Þessir skilmálar eru gefnir út á íslensku og ensku en um þá gilda íslensk lög og réttarreglur. Ef misræmi reynist milli íslenskrar og enskrar útgáfu þessara skilmála þá gildir sú íslenska. Rísi mál út af skilmálum þessum skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Sért þú búsettur eða með lögheimili í öðru ríki skal Spesíu þó vera heimilt að höfða mál fyrir dómstólum þess ríkis.

21. Gildistími

21.1. Skilmálar þessir taka gildi gagnvart þér þegar þú notar þjónustu Spesíu í fyrsta sinn.

21.2. Breytingar sem ekki eru lítilvægar á skilmálum þessum verða tilkynntar viðskiptavinum með hæfilegum fyrirvara. Sé breyting ekki til hagsbóta fyrir viðskiptavin er veittur 30 daga frestur á gildistöku breytinga og vakin athygli á rétti til uppsagnar þjónustu áður en þær taka gildi, nema breytingar séu nauðsynlegar samkvæmt gildandi lögum. Sé breyting til hagsbóta eða hlutlaus tekur hún gildi þegar í stað.

Rannís logoSeðlabanki logo

Starfsemi Spesíu er háð starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu og Spesía hefur hlotið styrki frá Tækniþróunarsjóði Rannís.


Rannís logoSeðlabanki logo

Starfsemi Spesíu er háð starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu og Spesía hefur hlotið styrki frá Tækniþróunarsjóði Rannís.


© Spesía eignastýring hf. 2024-2026. Allur réttur áskilinn.

Persónuverndarstefna

Vefkökuskilmálar