Hvernig á ég að byrja að fjárfesta?

Embla Nanna Þórsdóttir

Höfundur:

Embla Þórsdóttir

Birt

Afrita tengil

Embla Nanna Þórsdóttir

Höfundur:

Embla Þórsdóttir

Birt

Afrita tengil

Flestir Íslendingar vilja fjárfesta en virðast oft ekki vita hvernig þeir eigi að byrja. Ástæðan er meðal annars sú að fólki þykir fjárfestingar vera of flóknar. Undanfarið hafa atferlisfjármál vakið mikinn áhuga hjá mér, en þau fjalla um af hverju við hegðum okkur eins og við gerum þegar það kemur að fjármálum. Áhugaverðast finnst mér að við hegðum okkur oft allt öðruvísi en það sem fjármálafræðin segja að við  ættum að gera. Sjálf hef ég alltaf verið sparsöm og átt erfitt með að eyða í vitleysu. Að sama skapi hefur mér alltaf þótt erfitt að horfa upp á fólk í kringum mig fara óskynsamlega með peningana sína. Mig langar að leggja mitt af mörkum til að efla fjármálalæsi á Íslandi og það er stór ástæða þess að ég vinn hjá Spesíu. Eitt af því sem ég vil koma á framfæri varðandi fjárfestingar er að þó þær virðist flóknar, þá þarftu hvorki að vera sérfræðingur né eiga fullt af peningum til að gerast fjárfestir. Þú þarft bara að byrja. 

Íslendingar eru duglegir að spara. Samkvæmt nýlegri rannsókn stunda 69% almennings reglubundinn sparnað og hefur þetta hlutfall ekki verið hærra frá því að Gallup hóf mælingar árið 2007. Könnunin leiddi í ljós að 28,2% landsmanna eiga innlend hlutabréf eða í innlendum sjóðum en aðeins 8,1% eiga erlend hlutabréf eða í erlendum sjóðum. Tæp 66% eiga hins vegar engin verðbréf. Sama könnun leiddi í ljós að almenningur er almennt jákvæður gagnvart kaupum á verðbréfum og hlutabréfum, líkt og vikið er að í upphafi þessarar greinar, en helstu ástæður þess að fólk fjárfestir sparnaðinum ekki í hlutabréfum eða skuldabréfum eru skortur á fjármagni og sú upplifun að slíkar fjárfestingar séu of flóknar. 

Við hjá Spesíu viljum breyta þessu. Hér eru nokkur gagnleg ráð hvernig má byrja að fjárfesta:

Skref 1: Settu fjárfestingar í samhengi við heimilisbókhaldið

Áður en að þú byrjar að fjárfesta er skynsamlegt að eiga varasjóð. Við vitum aldrei hvað gerist í framtíðinni og því er gott að eiga sjóð sem grípur þig ef eitthvað óvænt kemur upp á. Algeng þumalputtaregla er að byrja á að byggja upp varasjóð sem nemur a.m.k. þriggja mánaða útgjöldum og geyma hann á aðgengilegum sparnaðarreikningi.

Ef þú ert með dýrar skuldir, til dæmis yfirdrátt, bílalán eða önnur neyslulán, er yfirleitt skynsamlegt að greiða þær niður líka áður en byrjað er að fjárfesta. Vextirnir á slíkum skuldum eru oftast mun hærri en það sem þú getur búist við að fá út úr fjárfestingum, svo að þú færð í raun hærri ávöxtun með því að greiða þær niður fyrst.

Skref 2: Finndu þína fjárfestingaraðferð

Það eru margar leiðir til að fjárfesta og þær snúast ekki allar um að þurfa fylgjast með fjármálamörkuðum og fréttum í leit að tækifærum. Það skiptir miklu máli að eiga vel dreift eignasafn og að hlutfallið milli áhættumeiri eigna og öruggari eigna passi við þinn tímaramma og þitt þol fyrir sveiflum á markaði. Ef þú veist ekki alveg hvar þú átt að byrja er líklega ein einfaldasta og sniðugasta leiðin að nota sjálfvirka fjárfestingarþjónustu eins og Spesía býður upp á. Þá fjárfestir þú í vel dreifðu eignasafni alþjóðlegra hlutabréfa og íslenskra skuldabréfa, byggt á þínu áhættusniði og markmiðum, án þess að þurfa að velja og fylgjast með fjárfestingunum sjálfum. Lesa má nánar um hvernig Spesíu leiðin til að fjárfesta virkar hér.

Skref 3: Ekki bíða eftir rétta tímanum

Sumir bíða árum saman eftir að „rétti tíminn“ komi til að byrja að fjárfesta en enginn getur í raun sagt fyrir um hvenær markaðir hækka eða lækka. Sagan sýnir að þeir sem byrja snemma og fjárfesta reglulega, til dæmis mánaðarlega, ná yfirleitt betri árangri til lengri tíma en þeir sem reyna að tímasetja markaðinn. Mundu að tíminn vinnur með þér, því fyrr sem að þú byrjar, því lengri tíma hafa peningarnir þínir til að vaxa með áhrifum vaxtavaxta. Hér fjallar Georg, forstjóri Spesíu, nánar um áhrif þeirra.

Byrjaðu því frekar með lága upphæð og fjárfestu reglulega frekar en að bíða eftir fullkomnu tímasetningunni til að leggja allt inn í einu. 

Skref 4: Gættu að kostnaðinum

Fylgstu vel með því hvað þú borgar í gjöld. Munurinn á 1% og 3% árlegum kostnaði hljómar kannski lítill, en síðara hlutfallið étur upp ótrúlega stóran hluta af ávöxtuninni þinni til langs tíma. Á síðunni okkar um gjöld og kostnað má sjá nánari umfjöllun um áhrif gjalda.

Skref 5: Reyndu svo að gleyma þessu

Þegar þú hefur byrjað að fjárfesta, og jafnvel skráð þig í sjálfvirka áskrift, er síðasta skrefið bara að halda áfram, láta peningana þína vera svo þeir fái tækifæri til að vaxa. Það getur reynst tilfinningalega erfitt þegar markaðurinn lækkar en það munu alltaf koma bæði hæðir og lægðir. Sýndu þolinmæði og hugsaðu um langtímamarkmiðið.

Í stuttu máli

Eiga varasjóð, losa sig við dýrar skuldir, byrja svo að fjárfesta í vel dreifðu alþjóðlegu eignasafni sem hentar þínum tímaramma og gera það reglulega, ekki bíða eftir hinum fullkomna tíma. 

Spesía getur aðstoðað þig við að velja eignasafn sem hentar þínum markmiðum. Þetta er ekki flóknara en það, restin er þolinmæði.

Rannís logoSeðlabanki logo

Starfsemi Spesíu er háð starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu og Spesía hefur hlotið styrki frá Tækniþróunarsjóði Rannís.


Rannís logoSeðlabanki logo

Starfsemi Spesíu er háð starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu og Spesía hefur hlotið styrki frá Tækniþróunarsjóði Rannís.


© Spesía eignastýring hf. 2024-2026. Allur réttur áskilinn.

Persónuverndarstefna

•

Vefkökuskilmálar

•