Lág gjöld skipta öllu máli
Einn frægasti fjárfestir allra tíma, Warren Buffett, sagði: "Kostnaður í fjárfestingum skiptir sköpum varðandi hvað þú endar með mikið að lokum" og átti við að gjöld skipta gríðarlegu máli þegar fjárfest er til lengri tíma svo ávöxtunin skili sér að mestu leyti óskipt til þín.
Á Íslandi hefur verið nær ómögulegt fjárfesta í sjóðum eða vera í eignastýringu án þess að borga yfirgengilega há gjöld sem soga til sín meirihluta allrar raunávöxtunar sem fjárfestingarnar skila til lengri tíma.
Hér getur þú séð skýrt og skilmerkilega hvað það kostar að fjárfesta hjá Spesíu. Hjá okkur eru engin falin eða óvænt gjöld og við hvetjum þig til að gera verðsamanburð. Hér neðst á síðunni sérðu líka hvernig við komum út í samanburði við aðra fjárfestingarkosti á Íslandi.

Bankarnir virðast stundum leggja sig fram við að fela gjöld og gera það erfitt að skilja hvað greitt er mikið og fyrir hvað. Spesía er öðruvísi. Við leggjum okkur fram við að hafa verðskránna eins einfalda og skýra og hægt er.
| Kostnaðarliður | Kostnaður sem hlutfall af eignum |
|---|---|
| Gjald Spesíu fyrir eignastýringu | 0,45% á ári |
| Gjald Spesíu fyrir sjóðsstýringu | 0,45% á ári |
| Samtals heildarþóknun Spesíu | 0,90% á ári |
| Viðskiptakostnaður og gjöld undirliggjandi eigna í sjóðum Spesíu (lítillega breytilegt - áætluð tala) | ~0,08% á ári |
| Þinn heildarkostnaður | ~0,98% á ári |

Samkvæmt okkar útreikningum er árlegur kostnaður og gjöld í öllum hlutabréfasjóðum og blönduðum sjóðum í rekstri íslenskra aðila að meðaltali um 2,4% á ári og lang oftast á bilinu 2 til 3 prósent hjá einstökum sjóðum.
Hægt er að skoða yfirlit yfir alla íslenska sjóði og kostnað þeirra hér.
Hár kostnaður væri hugsanlega réttlætanlegur ef þessir sjóðir væru almennt að gera betur en vísitölurnar sem þeir miða sig við og sjóðsstjórar þeirra væru því almennt að “vinna fyrir kaupinu sínu”. En það er því miður ekkert sem bendir til að svo sé ef árangur undanfarinna ára og áratuga er skoðaður. Enginn íslenskur sjóður getur sýnt fram á slíkan árangur. Það er líka í samræmi við alþjóðlegar rannsóknir sem sýna að afar fáir sjóðir, eða innan við 10%, gera betur en meðaltal markaðarins sé litið til lengri tíma en 5-10 ára, hvað þá lengri tímabila.
Verðskrár sjóða á Íslandi eru oftast flóknar og ógagnsæjar og kostnaður og gjöld geta gengið undir ýmsum nöfnum eins og kaupkostnaður, sölukostnaður, gengisálag, árangurstengdur kostnaður, sjóðastýringarkostnaður, viðskiptakostnaður, vörslureikningsgjald, annar kostnaður o.fl. Markaðsefni er líka oft villandi þegar kemur að gjöldum. T.d. er algengt að auglýsa allt að 100% afslátt af kaupþóknun þegar keypt er í sjóðum þegar sá kostnaður skiptir í raun litlu máli samanborið við sjóðastýringarkostnaðinn sem fellur til á hverju einasta ári og er kannski 2% eða hærri.
Öllum rekstraraðilum sjóða er þó skilt að útbúa og gera öllum fjárfestum aðgengilegt svokallað lykilupplýsingaskjal sem inniheldur mikilvægar upplýsingar um kostnaðinn í sjóðunum. Þessi skjöl eru oft ekki mjög áberandi og kostnaðarupplýsingarnar eru aftarlega í þeim en það margborgar sig að temja sér að skoða kostnaðarkaflann vel áður en fjárfest er í sjóðum.

Fyrir þá sem eru í fjárfestingarráðgjöf eða eignastýringu (sem almennt er ekki aðgengileg nema maður sé að lágmarki með 30-50 milljónir kr. í stýringu) er jafnvel ennþá erfiðara að átta sig á kostnaðinum.
Verðskrár í eignastýringu eru ekki alltaf opinberar og afsláttur af gjöldum tíðkast víða hjá þeim sem erum með háar fjárhæðir í stýringu. Svo er gjaldskráin marglaga því maður borgar almennt bæði eignastýringargjald og líka gjöldin í þeim sjóðum sem eignastýringin beinir fjárfestingunni í.
Skv. mati Spesíu er heildarkostnaðurinn í eignastýringu á Íslandi almennt um eða yfir 3% á ári þegar allt er talið nema hjá þeim sem eru með mjög háar upphæðir í stýringu (milljarð króna eða meira). Á móti fær maður meiri þjónustu í eignastýringu, t.d. persónulega fjárfestingarráðgjöf og í sumum tilfellum aðgang að fjárfestingum sem maður hefði annars ekki haft möguleika á að taka þátt í.
En þrátt fyrir þessa kosti er engin leið að réttlæta árlegan heildarkostnað upp á 3% eða meira - engin eignastýring getur unnið það upp til lengri tíma með góðri þjónustu eða snjöllu vali á fjárfestingum. Spesía hvetur þá sem eru í eignastýringu til að skoða vandlega hver árlegur heildarkostnaður er við stýringuna og þá sjóði og annað sem fjárfest er í.