Einföld leið til að fjárfesta
Spesía er sjálfvirk fjárfestingarþjónusta sem veitir öllum, óháð efnahag og þekkingu á fjármálum, aðgang að faglegri og persónulegri fjárfestingarráðgjöf og eignastýringu.

Markmið Spesíu er að gera fjárfestingar í vel dreifðu eignasafni alþjóðlegra hlutabréfa og íslenskra ríkisskuldabréfa jafn einfaldar og að nota venjulega bankareikninga.
Þegar þú fjárfestir með Spesíu færð þú ávöxtun alþjóðlegra hlutabréfamarkaða sem hefur sögulega verið miklu betri en t.d. ávöxtun innlána þegar til lengri tíma er litið. Lág gjöld tryggja að ávöxtunin rennur að mestu leyti óskipt til þín.
Þegar þú stofnar reikning hjá Spesíu leiðum við þig í gegnum val á fjárfestingarstefnu sem hentar þér með því að spyrja um þín markmið, fjárhag og viðhorf þitt til áhættu. Út frá svörunum ráðleggjum við fjárfestingarstefnu sem við teljum að henti þér best. Stundum henta fleiri en ein stefna og þá getur þú valið á milli þeirra.
Leiðirnar fela í sér mismikla áhættu sem endurspeglast í mismunandi blöndu af alþjóðlegum hlutabréfum og íslenskum ríkisskuldabréfum.
Varfærin

Varfærin fjárfestingarstefna miðar að því að passa vel upp á peningana þína og koma í veg fyrir miklar sveiflur. Sóst er eftir hægum og stöðugum vexti og aðalmarkmiðið er að verja það sem þú átt, jafnvel á kostnað möguleika á hærri ávöxtun.
Fjárfest er í blöndu af hlutabréfum og íslenskum ríkisskuldabréfum, þar sem rík áhersla er lögð á hóflegar sveiflur og góða áhættudreifingu. Hlutabréfin eru alþjóðlega dreift safn sem nær til þúsunda félaga um allan heim.
Blönduð

Blönduð fjárfestingarstefna miðar að því að feta meðalveginn milli öryggis og vaxtar. Hún felur í sér nokkrar sveiflur þar sem sóst er eftir góðri ávöxtun, en þó miðar hún líka að því að sparnaðurinn þinn sé vel varinn til lengri tíma.
Fjárfest er í blöndu af hlutabréfum og íslenskum ríkisskuldabréfum, þar sem rík áhersla er lögð góða áhættudreifingu. Hlutabréfin eru alþjóðlega dreift safn sem nær til þúsunda félaga um allan heim.
Framsækin

Framsækin fjárfestingarstefna miðar að því að ná hámarks ávöxtun til langs tíma, jafnvel þó það kosti stærri sveiflur á leiðinni. Hér er tekin meiri áhætta til að eiga betri möguleika á hærri ávöxtun.
Fjárfest er í hlutabréfasafni, þar sem rík áhersla er lögð á góða áhættudreifingu. Fjárfest er í alþjóðlega dreifðu safni sem nær til þúsunda félaga um allan heim.
Þú skráir þig inn í Spesíu appið eða á spesia.is til að sjá stöðu eignasafnsins og líka til að leggja inn og taka út.


Þegar þú leggur inn á reikninginn þinn hjá Spesíu þá er öll upphæðin notuð til að kaupa í þeim sjóði sem fylgir þeirri fjárfestingarstefnu sem þú valdir. Að sama skapi þegar þú tekur út er selt í sjóðnum og söluandvirðið (að frádregnum hugsanlegum fjármagnstekjuskatti söluhagnaðar) er millifært á bankareikninginn þinn. Spesía sér um allt annað og stýrir eignasafninu ávallt í samræmi við þá fjárfestingarstefnu sem þú valdir, sem m.a. felst í að hlutfalli hlutabréfa og skuldabréfa er haldið nokkurn veginn föstu.
Ávöxtunin fer svo eftir því hvernig sjóðnum vegnar: Ef virði eignanna í sjóðnum hækkar, hækkar þinn hlutur líka - og lækki virðið, þá lækkar þinn hlutur á sama hátt. Staða Spesíu reikningsins þíns sýnir ávallt virði og ávöxtun eignasafnsins eins og það er á hverjum tíma. Þú getur líka séð allar eignirnar í eignasafninu þínu með því að skrá þig inn og velja “eignasafn” í appinu eða á vefnum.
