indó appið

Höfundur:
Embla Þórsdóttir
Birt
Afrita tengil

Höfundur:
Embla Þórsdóttir
Birt
Afrita tengil
Ath. indó er ekki með netbanka og býður því bara uppá að stilla sjálfvirkar mánaðarlegar (og vikulegar) greiðslur í appinu.
1. Opnaðu indó appið og smelltu á Millifæra í forsíðunni.

2. Sláðu inn kennitölu Spesíu: 4309240440 og smelltu á Áfram.

3. Næst slærð þú inn reikningsnúmer Spesíu: 0515-14-010600 og smellir á Áfram.

4. Þá velur þú upphæð reglulegu greiðslunnar og smellir á myndina af dagatalinu vinstra megin á skjánum:

5. Þar getur þú valið dagsetningu á greiðslunni (hvaða mánaðardag hún á sér stað í hverjum mánuði) og hvort hún eigi að endurtaka sig vikulega eða mánaðarlega og smellir á Áfram.

6. Þá getur þú valið hvort að þú viljir setja inn skýringu á greiðslunni. Næst smellir þú á Staðfesta og þá er þetta komið.
