Við röðum þessu upp fyrir þig

Industry specialist


Alþjóðlegt eignasafn. Lág gjöld. Það sem hefur vantað á Íslandi.

Rubik cube
Faglegt

Margreynd aðferðafræði.

Spesía fjárfestir með viðurkenndum vísindalegum aðferðum í vel dreifðu safni alþjóðlegra hlutabréfa og íslenskra skuldabréfa.

Spesía byggir á nokkrum meginreglum fjárfestinga: Áhættudreifingu, lágum kostnaði og því að velja eignasamsetningu með hliðsjón af fjárfestingartíma og áhættuþoli.

Nálgun Spesíu byggir á áratuga rannsóknum á fjárfestingum og gögnum um hvernig markaðir og fjárfestar hafa raunverulega hagað sér - ekki tilfinningu, spádómum eða heppni.

Einfalt

Hagkvæmni næst með einfaldleikanum

Spesía hefur straumlínulagað allt ferlið við fjárfestingar og þú færð ábatann í þinn vasa.

  1. Þú svarar nokkrum spurningum.
  2. Við mælum með fjárfestingarstefnu sem þú staðfestir.
  3. Þú leggur inn og fylgist með í appinu eða á vefnum.

Við sjáum um allt annað.

Við smíðuðum lausnina sem bankarnir geta ekki boðið upp á.

Spesía application

1 milljón kr. sett í alþjóðleg hlutabréf & sparnaðarreikninga 2001-2025

Spara eða fjárfesta?
Ekki sætta þig við 0% vexti.

Jafnvel sparnaðarreikningarnir með hæstu vextina halda varla í við verðbólgu. Það þýðir að raunávöxtunin er 0%. Sparnaður þinn á betra skilið. Hættu að spara. Fjárfestu!

Gjöld skipta máli
Ekki fjárfesta í gjöldum.

Gjöld skipta öllu máli þegar kemur að fjárfestingum svo ávöxtunin skili sér til þín. Á Íslandi hafa gjöld í sjóðum og eignastýringu lengi verið yfirgengilega há. Svo há að yfir helmingur raunávöxtunar sjóðanna hefur farið í gjöld og kostnað en innan við helmingur til fjárfesta. Spesía er öðruvísi. Því minna sem fer í kostnað, því meira safnast fyrir hjá þér.

Tíu ára ávöxtun af milljón króna fjárfestingu.

Hvað fer í gjöld og hvað færð þú?

Spesía

0,98% í gjöld á ári

722 þ. til þín

243 þ.

Íslenskir sjóðir

2,36% í gjöld á ári að meðaltali*

414 þ.

551 þ. í gjöld

Til þín

Í gjöld

Áhættudreifing

Ekki geyma allt á Íslandi.

Með Spesíu dreifir þú fjárfestingum þínum um allan heim og dregur úr áhættunni sem fylgir litlum hagkerfum.

1 milljón kr. sett í alþjóðleg og íslensk hlutabréf 2001-2025

Umfjöllun
Tómas Áki Gestsson
Áhættudreifing margborgar sig

Tómas Áki Gestsson,
Stofnandi & fjárfestingarstjóri

Af hverju við stofnuðum Spesíu
Af hverju við stofnuðum Spesíu

Georg Lúðvíksson
Stofnandi & forstjóri

Bergur Ebbi
Ný hugsun á fjármálamarkaði

Bergur Ebbi
Meðstofnandi

Embla Nanna Þórsdóttir
Hvernig á ég að byrja að fjárfesta?

Embla Nanna Þórsdóttir
Fjármála- og sjóðstjóri

Umfjöllun
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
Tómas Áki Gestsson
Áhættudreifing margborgar sig

Tómas Áki Gestsson,
Stofnandi & fjárfestingarstjóri

Af hverju við stofnuðum Spesíu
Af hverju við stofnuðum Spesíu

Georg Lúðvíksson
Stofnandi & forstjóri

Bergur Ebbi
Ný hugsun á fjármálamarkaði

Bergur Ebbi
Meðstofnandi

Embla Nanna Þórsdóttir
Hvernig á ég að byrja að fjárfesta?

Embla Nanna Þórsdóttir
Fjármála- og sjóðstjóri

Lock code
Öruggt

Þínir peningar eiga skilið tryggt eftirlit.

  • Spesía starfar undir eftirliti frá Seðlabanka Íslands.
  • Eignasafnið er geymt hjá vörsluaðila í þínu nafni og er ávallt aðskilið frá fjárhag Spesíu.
  • Aðeins er hægt að millifæra á bankareikning á þinni kennitölu.
  • Spesía er óháð íslenska bankakerfinu.
Spurt & svarað

Persónuvernd og upplýsingaöryggi eru eins og best verður á kosið og eru hornsteinar í allri starfsemi Spesíu. Að auki starfar Spesía eftir lögum um persónuvernd og hefur sett sér sérstaka persónuverndarstefnu, sem lesa má hér.

Spesía er íslensk fjárfestingaþjónusta sem gerir þér kleift að fjárfesta í vel dreifðu alþjóðlegu eignasafni hlutabréfa og skuldabréfa með einföldum hætti og gegn lágum gjöldum. Við sjáum um allt það flókna með sjálfvirkri ráðgjöf og eignastýringu , svo að þú þarft ekki að vera sérfræðingur til að byrja. Að fjárfesta með Spesíu er jafn einfalt og að nota venjulega bankareikninga og hentar mjög vel þegar fjárfest er til lengri tíma en tveggja ára.

Verðskrá Spesíu er afar einföld. Þóknun Spesíu skiptist í tvennt: sjóðastýringargjald og eignastýringargjald. Að auki fellur til smávægilegur kostnaður inni í sjóðunum sjálfum vegna kaupa og sölu eigna, en Spesía tekur engar sérstakar þóknanir við kaup eða sölu og það eru engin önnur falin gjöld. Þú sérð nákvæmlega hvað þú borgar, alltaf.

Markmið Spesíu er að vera lang hagkvæmasti kosturinn á Íslandi svo að stærstur hluti ávöxtunarinnar skili sér til fjárfesta. Verðskrá Spesíu má finna hér.

Við viljum að fjárfestingar séu aðgengilegar öllum og þess vegna er engin lágmarksinnlögn hjá Spesíu. Þú getur lagt inn hvaða upphæð sem er og byrjað smátt og lagt inn meira síðar eða byrjað í áskrift með lágri upphæð.

Spesía fjárfestir fyrir þig í alþjóðlegum hlutabréfum og íslenskum ríkisskuldabréfum í mismunandi hlutföllum eftir fjárfestingaleiðum. Spesía fjárfestir í alþjóðlegum hlutabréfum í gegnum nokkra vísitölu- og kauphallarsjóði sem hafa lág gjöld þannig að niðurstaðan verður vel dreift alþjóðlegt eignasafn sem mætti kalla heimssafn hlutabréfa. Safnið inniheldur hlutabréf í þúsundum fyrirtækja um allan heim, þar á meðal í Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu. Spesía fjárfestir einnig í íslenskum ríkisskuldabréfum. Þú getur séð nákvæma samsetningu á eignasafninu þínu (þ.e. í hvaða fyrirtækjum og skuldabréfum er fjárfest og fyrir hversu mikið) á hverjum tíma inn á mínum síðum undir "Eignasafn".

Fylgstu með. Skráðu þig á póstlistann.

Rannís logoSeðlabanki logo

Starfsemi Spesíu er háð starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu og Spesía hefur hlotið styrki frá Tækniþróunarsjóði Rannís.


Rannís logoSeðlabanki logo

Starfsemi Spesíu er háð starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu og Spesía hefur hlotið styrki frá Tækniþróunarsjóði Rannís.


© Spesía eignastýring hf. 2024-2026. Allur réttur áskilinn.

Persónuverndarstefna

•

Vefkökuskilmálar

•