Ekki spara. Fjárfestu.
Fjárfestu með einföldum hætti í alþjóðlegu eignasafni.

Þetta þarf ekki að vera flókið.
Þú þarft ekki að vera sérfræðingur til að fjárfesta. Við leiðum þig í gegnum ferlið og útskýrum allt á mannamáli.
- Þú svarar nokkrum spurningum.
- Við mælum með fjárfestingarstefnu sem þú staðfestir.
- Þú leggur inn og fylgist með í appinu.
Við sjáum um allt annað.

Umfjöllun um Spesíu
1 milljón kr. sett í alþjóðleg hlutabréf & sparnaðarreikninga 2001-2025
Ekki sætta þig við 0% vexti.
Bestu sparnaðarreikningar halda varla í við verðbólgu. Það þýðir að raunávöxtunin er 0%. Sparnaður þinn á betra skilið. Hættu að spara. Fjárfestu!
Ekki fjárfesta í gjöldum.
Á Íslandi hefur lengi verið yfirgengilega dýrt að fjárfesta í sjóðum eða vera í eignastýringu. Spesía er öðruvísi. Því minna sem fer í kostnað, því meira safnast fyrir hjá þér.

Umfjöllun um Spesíu
Hvað skiptir þig mestu máli?
Fólk hefur ólíkar þarfir og mismikinn áhuga á fjármálum.

Loksins lausn sem ég get mælt með.
Spesía auðveldar öllum að fjárfesta eins og best verður á kosið.

Viðurkennd aðferðafræði.
Spesía fjárfestir, án milliliða, í vel dreifðu safni alþjóðlegra hlutabréfa og íslenskra skuldabréfa. Einfaldleiki sem skilar sér í lægri gjöldum.
Ekki geyma allt á Íslandi.
Með Spesíu dreifir þú fjárfestingum þínum um allan heim og dregur úr áhættunni sem fylgir sveiflum í litlum hagkerfum.
1 milljón kr. sett í alþjóðleg og íslensk hlutabréf 2001-2025

Þínir peningar eiga skilið tryggt eftirlit.
- Spesía starfar undir eftirliti frá Seðlabanka Íslands þar sem ríkar kröfur eru gerðar til öryggismála.
- Eignasafnið þitt er geymt í þínu nafni hjá traustum vörsluaðila og er ávallt aðskilið frá fjárhag Spesíu.
- Aðeins er hægt að millifæra frá Spesíu á bankareikning á þinni kennitölu.
- Spesía er óháð íslenska bankakerfinu.
Spurt & svarað
Já. Fyrirtækið er íslenskt og starfsemi Spesíu er háð íslenskum lögum og reglum ásamt leyfi og eftirliti frá íslenska Fjármálaeftirlitinu. Spesía er ennfremur að öllu leyti í eigu íslenskra aðila, aðallega stofnenda. Þjónusta félagsins er hugsuð til að uppfylla þarfir íslenskra neytenda.
Persónuvernd og upplýsingaöryggi eru eins og best verður á kosið og eru hornsteinar í allri starfsemi Spesíu. Að auki starfar Spesía eftir lögum um persónuvernd og hefur sett sér sérstaka öryggis- og persónuverndarstefnu, sem lesa má hér.
Spesía er að mestu í eigu stofnenda og starfsmanna. Stofnandi og forstjóri Spesíu er Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í heimilisfjármálum og stofnandi og fyrrum forstjóri Meniga. Tómas Áki Gestsson er stofnandi og fjárfestingastjóri, en hann hefur starfað í margvíslegum störfum innan íslensks fjármálamarkaðar, síðast hjá Seðlabankanum. Aðrir meðstofnendur og eigendur eru Peter Short tæknistjóri fyrirtækisins, Bergur Ebbi sem sinnir markaðs- og kynningarmálum og Tinna Karen Gunnarsdóttir sem leiðir framendaforritun.
Að auki eiga rúmlega 20 fjárfestar, aðallega einstaklingar og fjölskyldufyrirtæki, hlut í Spesíu. Þar á meðal eru Arnar Þór Másson og fyrirtæki Guðmundar Fertram Sigurjónssonar en þeir sitja báðir í stjórn Spesíu.
Spesía er sjálfstætt og óháð fyrirtæki og ekki í eigu íslenskra banka eða hluti af hinu hefðbundna íslenska bankakerfi.
Spesía er fjárfestingaþjónusta sem veitir fjárfestum aðgang að ávöxtun alþjóðlegra fjármálamarkaða á einfaldan hátt. Með Spesíu geta allir fjárfest í vel dreifðu heimssafni hlutabréfa og skuldabréfa með mátulega mikilli áhættu miðað við þarfir hvers og eins. Að spara með Spesíu er jafn einfalt og að nota venjulega bankareikninga og hentar mjög vel þegar spara á til lengri tíma en tveggja ára.
Já, ef þú hefur íslenska kennitölu, rafræn skilríki og ert 18 ára eða eldri. En athugaðu að við höldum samt eftir 22% fjármagnstekjuskatti hjá öllum viðskiptavinum þegar hagnaður er innleystur. Ef þú átt að borga lægri skatt á Íslandi vegna skattalegrar heimilisfesti annars staðar og/eða tvísköttunarsamninga þarft þú að gera grein fyrir því sjálf/ur á þínu íslenska skattframtali og sækja leiðréttingu til RSK við álagningu.
Vertu á undan. Skráðu þig á biðlistann.




